Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1920, Blaðsíða 30
arinnar við jarðveginn, sem hún er vaxin upp úr. Þessi hollvættur
mannkynsins, hugmyndin um guð, hefir orðið ti! þess að glæða stöð-
ugt hið andlega líf í mannssálunum, eða að rninsta kosti, að halda
því við,
Hver er uppruni hennar?
Menn hafa brotið mjög heilann um það, hver muni vera uppruni
þessarar hugmyndar, og hefir hún orðið mörgum fræðimanninum ærið
torskilið viðfangsefni. Það hafa því oft orðið ærið sundurleitar skoð-
anir um hana, eins og flest annað, sem miklu máli skiftir. Vísindin
hafa gert ítrekaðar tilraunir til þess að grafa fyrir rætur hennar,
en eru nú litlu nær en þegar þau byrjuðu. Það er og ofur
skiljanlegt, að þeim hafi ekki orðið mikið ágengt í þessum efnum,
sökum þess, að þeim hefir ekki enn þá tekist að grafast fyrir um
uppruna mannkynsins. Því að hvernig er hugsanlegt, að þeim lánist að
grafast fyrir um uppruna einnar hinna elztu hugmynda mannkyns-
ins, á meðan þau vita ekki einu sinni hver er uppruni hinna elztu
þjóða, sem nú eru uppi? Og eins og kunnugt er, má það heita
sannaður hlutur, að margar og miklar þjóðir og þjóðflokkar hafa
verið uppi og liðið undir lok á hinu langa tímabili, sem litlar eða
engar sögur fara af og nefnt hefir verið ómunatíð.
Sumir fræðimenn hafa viljað halda þeirri skoðun ríkt fram, að
hugmyndin um guð eða drottin allsherjar muni eiga rætur sínar að
rekja til ófullkominna og einfeldnislegra hugmynda, er þjóðirnar
hafa, þegar mannkynið var í bernsku, gert sér um anda framlið-
inna manna og hinar og þessar huliðsverur. En svo eru aðrir, sem
álíta, að sú skoðun geti ekki náð nokkurri átt. Hinar vísindalegu
rannsóknir, segja þeir, hafa leitt það ótvírætt í ljós, að hugmyndin
um drottin allsherjar er mannkyninu meðfædd. Hversu langt sem
vér rekjum feril mannkynsins aftur í aldirnar, segja þeir, þá rekum
vér oss alt af á hugmynd þess um hinn æðsta guð eða drottin
28