Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1920, Blaðsíða 56
þeir hefðu aðeins verið skírðir upp á skírn Jóhannesar, fyrirrennar-
ans, sem boðaði komu Krists. Þegar Páll því næst útlistar fyrir
þeim, að iðrunarskírn jóhannesar sé lægri tegund skírnar og ekki
hin eiginlega kristna skírn, þá láta þeir skírast til nafns drottins
]esú. Fengu þeir þá heilagan anda, og ef svo var, hvernig vissu
menn það? Bersýnilegt er af frásögunni, að þeirrar skoðunar hefir
Páll verið. Samfara skírninni hefir farið fram handa-yfirlagning, og
með skírninni og handayfirlagningunni fylgir gjöf andans, sem þegar
í stað hefir undursamlega verkun á þá, sem skírðir eru. Þér heyrðuð
það sjálfir í textanum: »Og er Páll hafði lagt hendur yfir þá, kom
heilagur andi yfir þá, og þeir töluðu tungum og spáðu«. Þessar
voru verkanir heilags anda, og eftir að þær voru komnar í ljós,
hefir Páll vafalaust unað sér betur hjá þessum lærisveinum. Eftir
það hefir hann getað farið að tala við þá um hið dýrmætasta í
í reynslu sinni, um alt hið óvanalega og furðulega, er hann hafði
öðlast fyrir kraftinn af hæðum. Aður höfðu þeir ekki skilið hann
nema til hálfs, af því að þá skorti með öllu samskonar reynslu. En
nú, er tvær af hinum svonefndu andagáfum voru komnar í ljós hjá
þeim, sömu gáfurnar, er Páll segir, að hann hafi sjálfur átt í rík-
um mæli, þá hefir samúðin orðið meiri. Úr því hefir hann getað
sagt þeim frá allri reynslu sinni — jafnvel frá sýninni hjá Damaskus.
Kærir tilheyrendur, ef þér væruð vel kunnugir Nýja testamentinu,
þá væri yður ljóst, að menn í fyrstu kristni og þeirra á meðal Páll
postuli litu svo á, að ef menn hlytu heilagan anda, þá kæmi það
í ljós mað þeim hætti fyrst og fremst, að þeir yrðu fyrir einkenni-
legum áhrifum á vitundarlíf sitt, svo sem einhver æðri máttur kæmi
yfir þá. í einu bréfi Páls er það einu nafni nefnt: opinberun and-
ans (1. Kor. 12, 7). Og þar er tekið fram, að undir þeim áhrifum
andans niæli sumir af speki, aðrir af þekkingu; en aðrir öðlist fyrir
þau áhrif trú til að gera kraftaverk, eða lækningagáfu eða spámann-
54