Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1920, Page 71

Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1920, Page 71
gert oss um menn. Slíkur maður leggur svo inn á enn þá æðri þroskabraut, þar sem hinn guðdómlegi ljómi sýnist stafa út frá hon- um á alla vegu. Hann hefir gengið þann veg, sem bæði þú og eg getum gengið. Það er síður en svo, að hann sé nokkurt furðuverk náttúrunnar. Hann hefir ekki fengið afrekað neitt það, sem öðrum mönnum er ekki vinnandi vegur að fá afrekað. En meistararnir eru viðlíka hátt upp hafnir í andlegu tilliti yfir oss eins og snilling- urinn er hafinn yfir miðlungsmenn. Þeir eru afburðamenn á sviðum trúarbragðanna, sannkölluð andleg mikilmenni. En sökum þess að hið eina og sama ljós lýsir í hjarta hvers einstaks manns, ljósið, sem lýsir öllum, er koma inn í þenna heim, ættum við, þú og eg, að láta okkur lærast að láta það skína. Því að ljósið er eitt og hið sama, hvort seni það er í gegnsæu gleri eða ógegnsæu. Hið eilífa ljós er hið sama í öllum, en sumir eru svo hreinir og heilagir, að það nær að skína út frá þeim, en hjá öðrum er það að eins sem neisti, er getur ekki lýst gegnum hýðið, sem það er í. Meistarinn er því maður, sem hefir náð því að opinbera hið guð- ræna eðli í sjálfum sér. Hann er einn af hinuni eldri bræðrum mannkynsins, eldri í þeim skilningi, að hann hefir náð afburða miklum andlegum þroska. Hann hefir farið þann veg, sem eg vil nú reyna að lýsa, og komist alla leið á hinn fjarlæga brautarenda. Hann hefir og tekið hverja vígsluna eftir aðra og þær hafa hafið meðvitund hans á æðra stig og veitt honum þekkingu, ekki að eins á þessari veröld, heldur einnig á öllum öðrum heimum, sem andi mannsins lifir í. Þó lifir hann í hinum jarðneska líkama, eins og eg liefi þegar tekið fram, til þess að geta staðið í nánara sam- bandi við sambræður sína en ella mundi. Hann er og fús til þess að taka sér lærisveina og fræða þá, svo að þeir geti fetað þann veg, sem hann sjálfur hefir farið. Slíkur er meistarinn, en hvað er að segja um veginn? 69

x

Jólablað félagsins Stjarnan í austri.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólablað félagsins Stjarnan í austri.
https://timarit.is/publication/439

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.