Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1920, Qupperneq 87
stjarnan í austri blikar yfir hinu nýfædda barni; skírnin táknar aðra
vígsluna, þar sem andinn stígur niður yf>r lærisveininn; ummynd-
unin á fjallinu táknar þriðju vígsluna, þar sem guðdómseðlið birtist
í dýrð sinni og ljóma, og kvölin í Getsemane og á Golgata táknar
fjórðu vígsluna — dauða hins ytra manns.
Fimta vígslan.
Upprisa Krists og himnaför táknar fimtu vígsluna, er lærisveinn-
inn nær meistarastiginu. Úr því er hann ekki háður hinni jarð-
nesku tilveru né dauða. Hann er frjáls, sökum þess að eilífðar-
eðlið hefir komið fullkomlega í ljós. Hann er meistarinn, sem hefir
strítt og borið fullnaðarsigur úr býtum, gerst hjálpari manna og
frelsari. Hann hefir orðið að þola hvers kyns þrautir og þjáningar,
og sökum þess, að hann hefir sjálfur unnið sigur á þeim, er hann
hæfur til þess að hjálpa öðrum, jafnvel í hinni mestu neyð. Hann
veitir þó ekki þess konar hjálp, að hann taki byrðar hinna veik-
burða sér á herðar, heldur miðlar hinum veikburða af styrk sínum,
svo að þeir verði sterkir. Hann hefir ekki skifti á saurugleik synd-
arans og heilagleik sínum, heldur lætur hreinleik sinn eins og
streyma inn í sálu syndarans, unz hann verður hreinn og heilagur.
Hér er því um hlutdeild í eðli að ræða, en ekki, að einn komi í
annars stað.
Vaxtavhæð Krists-fyllingarinnar.
Þetta er líf Krists, sem er upprisinn — að hjálpa hinum yngri
og óþroskaðri bræðrum sínum, sem eru enn þá háðir hjóli dauðans
og endurfæðingarinnar. Hann er meistarinn, sem hefir unnið hinn
fullkomna sigur. En þér er vinnandi vegur að feta í fótspor hans.
Þú getur líka náð meistarastiginu. Þú getur gengið þann veg, sem
hann gekk, komist að takmarkinu, sem hann komst að.
Alítið þér, að þetta séu öfgar einar og fjarstæða? Vera má að
85
L
r