Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Page 32

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Page 32
190 Kjartan Helgason: iðunnt að heiman. Ég hef ekki tíma til að lýsa allri þeirri greiðvikni og hugulsemi, sem mér var sýnd, ekki afr eins á stöku stað, heldur alstaðar. Og með stór- gjöfum var ég leystur út, þegar ég fór alfarinn. Samkomurnar voru prýðilega sóttar, hvenær sen* svo hittist á, að veður og færð væri bærilegt. Þær voru tiltölulega bezt sóttar í sveitunum — þar sem eríiðleikarnir voru mestir, — en lakar í borgunum.. f einni lítilli sveit t. d., þar sem ekki voru til nema 120 sálir islenzkar, komu á samkomuna yfir 100;: og þó voru veikindi á einum bænum, svo að enginn kom þaðan. Af flestum hinum bæjunum hafa því allir farið, bæði ungir og gamlir, enda hafði ég þar fyrir áheyrendur hvitvoðunga á 1. ári. Og það var algengt, að konurnar komu með öll börnin með sér. Það var ekki lítið, sem fyrir þessu var haft: fyrst,. að taka sig upp eftir vinnutíma á kvöldin — sam- komurnar byrjuðu venjulega klukkan 8 — sitja þar undir fyrirlestri og myndasýningu 3—4 tima; þar á eftir voru oft ýms ræöuhöld og söngur, og stundum að lokum kaffidrykkja fram á rauða nótt. MérógaðL við að sjá þá konur og börn leggja af stað heim út í náttmyrkrið, oflast í grimdar gaddi. Eg þóttist góður, ef ég komst í rúmið, eftir slíkar sainkomur,. klukkan 2. Og margir áltu oft lengia í náttstað en ég. En ég fór ævinlega glaður af hverjum fundi, glaður ekki eingöngu vegna þeirrar alúðar og vel- vildar, sem mér var sýnd, heldur einkum af því, að mér fánst ég hafa fullan samhug fólksins; yiirleitt virtist mér það hafa skilning á því máli, sem ég var að flytja. Mér var stundum kalt á leiðinni milli bæja, en mér hefir ekki oft verið lilýrra innanbrjósts en á mörgum samkomunum í bændabygðunum þar vestra. Mér þótti ánægjulegt að standa þar frammi fyrir fríðum hóp karla og kvenna, og sjá íslenzka svip- inn; bláu augun og bjarta hárið, og andlitin full af

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.