Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Blaðsíða 66
224
Á. H. B.:
IÐUNN
En nú kem ég aö aðal-atriðinu, nefnilega Bien-Bóa, eins
og Richet helgaði hann rneð áliti sínu, Bien-Bóa, sem varð
að nokkurskonar opinberri persónu, er allir höfðu heyrt
getið um. . . .
Mér barst til eyrna, að hr. Richet væri kominn til Villa
Carmen í annað sinn, til þess að athuga þessi hohigunar-
fyrirbrigðí. En þar eð ég nú vissi, það sem að ofan var
sagt, hélt ég, að enginn mundi reynast svo djarfur eða
svo einfaldur, að stæla í augsýn svo frægs visindamanns
holdgun Bien-Bóa. Og ég þóttist viss um, ef þetta kæmi
i'yrir, að þá mundi Richet komast að prettunum. . . .
Ég ætla nú að lofa mönnum að imynda sér furðu mína,
þegar ég las í Annales psychiques í desbr. 1905 skýrslu
-Richets um manngervinga-fyrirbrigðin í Viila Carmen.
. . . Þann 1. janúar [1905] fór ég að heilsa upp á [Mörthu
Nig föður hennar] heima hjá þeim og liitti ég þar alla fjöl-
skylduna, lir. og frú B. og þrjár dætur þeirra. Pær þrjár
stundir, sem ég var þar, töluðum við um ekkert annað en
.Bien-Bóa. Sagði Martha mjög svo fjörlega og með nokkurri
kýmni alla söguna og hversu öllu hefði verið fyrirkomið.
Hún hafði verið gerð að miðli þvert á móti vilja sínum,
af því að frú Noel hafði fundið einhvern miðils-vott í
hverri smá-hreyfingu hennar og sá anda alstaðar. . . .
Þegar herra Richet kom, hafði hún lengi verið skoðuð
sem »mikill holdgunar-miðill.« Hvernig átti hún að komast
hjá því, að vera rannsökuð af þessum lærða manni? Hún
reyndi að verja sig með því að segja, að hún væri enginn
miðill og trúði ekki á anda, en þau lögðu svo ríkt að henni,
að hún gaf eftir að síðustu og fór aftur inn i byrgið í
setu-stofunni. . . . «
Þarna er þá Martha komin alla leið inn í byrgið,
og Richet fullyrðir, að girt haíi verið fyrir það í
‘þau skifli, sem hann var viðstaddur, að hjálp hafi
komið utan að; væru því brögð í tafli, hlytu þau
að stafa frá Mörthu B. Sjálfur rannsakaði R'chet
hvorki »andann« né hrúkuna á stólnum, þorði það
ekki gegn banni »andans«. En myndin segir frá, og
Schrenck-Notzing, sem hafði Mörthu B. til rann-