Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Side 75
IÐUNN
Trú og sannanir.
233
þeir að hafa ógreinilegar myndir á tjöldunum að
baki manninum eða smá-myndir fyrir framan sjón-
gler vélarinnar. Og er menn komust að þessu, tóku
ijósmyndararnir að koma smá-myndum fyrir inni í
sjálfri vélinni; en síðasta bragðið þeirra er það, að
hafa tvær plötur niðri í lauginni, þegar framkallað
er, hafa laugatrogið úr gleri og láta svo neðanljós
kasta »andamyndinni« af annari plötunni yfir á hina
af manninum, sem sat fyrir, og koma þannig annari
daufri mynd á hana. Það er því ekki við lambið
að leika sér, að fást við þessa lóma, því að alt af
finna þeir upp á nýjum brögðum og aldrei nógu
tryggilega umbúið, og þó keinst alt af upp um þá
að öðru hvoru.
Sérstaklega var nú látið af tveim myndum, sem
nýteknar höfðu verið á Englandi til þess að gera,
annari af Conan Doyle með syni hans, sem fallið
hafði í stríðinu, í baksýn, og hinni af hr. og frú
Wynn með Gladstone’s-hjónin sálugu i einkennileg-
um stellingum. Svikin við báðar þessar myndir eru
þegar komin upp.
Menn hafa kannske tekið eftir því, að allar þær
myndir, sem birtar eru í blöðum og tímaritum, eru
«ins og samsettar úr tómum strikum eða smá-dílum
og séu teknar Ijósmyndir af þeim aftur, koma díl-
arnir út á ljósmyndinni, að minsta kosti í stækkun-
argleri. Nú kom það í ljós á mynd Conan Doyle’s,
að myndin af syni hans sál. leystist upp í slíka
smá-díla, er hún var athuguð, og var því sýnilega
tekin úr einhverju blaði eða tímariti, enda varð
Conan Doyle nauðugur-viljugur við þetta að kannast,
að þetta gæti verið, enda þótt hann héldi, að þetta
hefði orðið á einhvern »yfirnáttúrlegan« hátt. En
myndin er áreiðanlega orðin til á náttúrlegan hátt
með þessu móti, sem greint var.
Á hinni myndinni varð »anda-ljósmyndarinn« fyrir