Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Page 78

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1921, Page 78
236 Á. H. B.: Trú og sannanir. IÐUNMl sem ég hafði verið með nokkra daga suður í itölsku Sviss. En þar innan í tilkynning frá ekkjufrú einni, er ég þekti og hafði skrifast á við, siðan ég var í Sviss í fyrra sinnið. Segir hún mér í linum þessum, að hún sé í þann veginn að leggja af stað til Hol- lands, að hitta föður sinn, sem lifir enn bezta líft þar og er kunnur og vel metinn maður. En ljós- hærða manninum veit ég engin deili á, því að maður frúarinnar var dökkhærður, og ekki druknaði hann, heldur rotaðist hann á því að detta niður úr flugvél í byrjun stríðsins. Eftir síðustu fréttum, sem ég hefi fengið, eru nú frúin og faðir hennar suður í Sviss og lifa þar bezta lífi við Lago Maggiore. Þetta dæmir sig sjálft og þarf ekki neinu við að bæta. Og þetta segir miðill, sem lætur auglýsa það slórum stöfum, þar sem hann kemur, að hann hafi aldrei orðið uppvís að svikum. Honum hefir þó verið úthúðað um öll Norðurlönd fyrir hina auðvirðilegu frammi- stöðu sína, en hér — hér fann hann akur þann, sem honum líkaði. Verði honum og þeim, sem á hann trúa, að góðu. Ég hefi nú sagt nokkuð frá »fýsisku fyrirbrigðun- um«, sem rannsóknarmenn ytra eru farnir að hafa meiri og minni óbeit á, sakir svika þeirra, sem hinir svonefndu atvinnumiðlar hafa svo títt í frammi. þar með er ekki sagt, að einhver dularfull og lítt-skilin fyrirbrigði geti ekki gerst, en mönnum hefir ekki enn tekist að grafa fyrir hinar raunverulegu orsakir þeirra. Miklu merkilegri virðast andlegu fyrirbrigðin vera og skal ég nú segja lítillega frá þeim næst. E» ekki lofa ég því, að þar verði neinar »óyggjandi sannanir« að finna fyrir andatrúnni, og þó skal ég ekki taka önnur dæmi en þau, er andatrúarmenn sjálfir telja beztu og veigamestu »sannanirnar«. Á. H. B.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.