Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Page 4
166
Einar Benedilrtsson:
IDUNN
Hjeðinn laut að bæn og blóti,
beggja átta, í siðaróti.
Kvað í feigð, gegn valdi og vjel,
vegandinn af Markarfljóti.
- Uppi er stef, þótt aldir hnigi.
Eilíft hlýðir Gimlis hvel.
Bítur orð á bál og hel;
bergur egg á Rimmugýgi.
Ingólf, Leif og Eirík sendi
alvöld stjórn, sem hörginn brendi.
Varð til frægða, en lítt til láns,
laga gæsla í þegnsins hendi.
Hljóma ennþá Kárakvonar
kvein frá vargöld morðs og ráns.
Gægist fram, að borðum Brjáns,
blóðugt höfuð Lambasonar. — —
Saga spyr og verknað virðir;
vísar bekk í dánarhirðir.
Rúst og dys ber rökin sönn.
Raunfast vitna Grænlands firðir.
Upphafsviljinn ætlun fremur
yfir loga, mold og hrönn.
Hauður undan hrammi og tönn
heimi siða endurnemur.