Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Page 8
IÐUNN
Frá Capri.
i.
Fyrir mörgum árum kom út,
í gömlu »Iðunni«, saga, sem
heitir »L’Arrabiata«. Sagan fer
fram á Italíu, er einkennileg
og full af suðrænum hita.
I þessari sögu heyrði eg
Capri fyrst nefnda á nafn. Og
það voru einu kynnin, sem eg
hafði af henni um mörg ár.
Eftir þennan sögulestur lang-
aði mig alt af til að koma til
Capri. En ekki gerði eg ráð
fyrir því, að það ætti fyrir mér
að liggja að stíga þar á land.
Síðastliðinn vetur gafst mér þó kostur á því. Lét eg þá
ekki tækifærið ganga mér úr greipum.
Eg kom frá Indlandi til Neapel í janúarlok. Þá var
kona mín þar fyrir. Við höfðum ráðgert að dvelja um
hríð á Ítalíu, áður við héldum heim. Og nú var enn
meiri ástæða til þess: því að við vorum bæði hálf þunn
í roði. Kuldinn á Norður-Ítalíu hafði þjáð hana mjög
um veturinn. En loftslag á Indlandi hafði leikið mig
grátt. En dvalarstaður var ekki ákveðinn.
Þegar við höfðum komið okkur fyrir í gistihúsi í Nea-
pel, fórum við að virða fyrir okkur útsýnið, sem er ann-
álað fyrir fegurð. Vzt á Neapelsflóa blasti við lítil, há-