Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Síða 14
176
]akob Kristinsson:
IÐUNN
ekki. Ofna sáum við ekki í húsum á Suður-Ítalíu og
miðstöðvarhitun er sjaldgæf. Auðmenn, meira að segja,
sem alt gátu veitt sér, sátu króklopnir, af því að hitunar-
tæki vantaði í hús þeirra. En víða eru í herbergjum
opnar arinstór, hlaðnar inn í veggi, og má þar brenna
skíðum. Þær eru mest til gamans og prýði, en ósköp
gagnslitlar til upphitunar. Þeir búast við eintómri blíðu,
þarna suðurfrá.
Ein af þessum arinstóm var í herberginu okkar. Al-
drei varð hún að miklu liði og oft verri en engin, því
að hún dembdi stundum öllum reyknum inn í herbergið
til okkar.
En þrátt fyrir þessa annmarka þótti okkur unaðslegt
að búa í Capri. Og við dvöldum þar nærri helmingi
lengur en við höfðum ætlað.
II.
Capri liggur 31 km suður frá Neapel. Hún er rúm-
lega 6 km á lengd, tæpir 3 km, þar sem hún er breið-
ust og liðlega l]/3, þar sem hún er mjóst. Er hægt að
róa umhverfis hana á þremur klukkustundum.
Capri rís hátt úr sjó og er ákaflega sæbrött. Minti
hún okkur á Vestmannaeyjar. Fjöll eru til beggja enda
eyjarinnar, en um miðbikið er hún lægst og mjóst. Eru
þar hafnir á báða bóga. Heitir sú syðri Litlahöfn, en
Stórhöfn hin, sem norðan til er á eynni. Um aðrar
hafnir er ekki að tala, þótt bátar geti lagst að landi í
logni, á örfáum stöðum. Langvíðast liggur þverhnípt
bjargið í sjó fram. Er það hæst þar sem Monte Solaro
heitir, þar er kletturinn 585 metrar á hæð. Solaro fjall
er suðvestan á eynni. Undir því er bærinn Anacapri, á
lítilli hásléttu. Er hún umlukt standbergi öllum megin.