Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Side 22

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Side 22
184 JaUob Kristinsson: IÐUNN IV. Við vorum um 9 vikur á Capri. Allan þann tíma héldum við til í bænum Anacapri, sem áður er getið um. Er þar næðisamara en í Capri-bæ og gestavaður minni. Ekki er laust við að bæjarígur sé milli Capri og Anacapri. Þykir Anacapringum hinir drykkfeldir og sukk- samir. Þegar haldnir eru dansleikir í Anacapri, þykja það veisluspjöll mikil ef þangað koma Capri-bæjarmenn. Því fer þó fjarri, að Anacapringar séu bindindismenn sjálfir. Fá þeir sér hressilega í staupinu á hátíðum og tyllidögum, bæði karlar og konur. En vel fara þeir með það, og urðum við aldrei vör við, að af hlytist nokkur óskundi. Virka daga sást aldrei ölvaður maður. Bezt er að kynnast lifnaðarháttum og einkennum eyj- arskeggja í Anacapri. Þar hafa þau haldið sér betur en annarstaðar. I Capri-bæ og Stórhöfn hefir ferðamanna- straumurinn, að sumu leyti, þurkað út einkenni og breytt lifnaðarháttum manna. Anacapri er einkennilegur bær og hefir hann mikinn Austurlandasvip. Húsin eru steinsteypt eða hlaðin úr grjóti, og sementsblönduðum leir eða sandi klest í hol- urnar. Þau eru flest lág með flötu þaki og hvítkölkuð utan. Er bjart yfir bænum, og er hann fallegur tilsýndar. En þegar inn í hann er komið, er ekki jafn vistlegt þar og vonir stóðu til. Flestar götur er ákaflega krókóttar og sumar svo mjóar, að eigi geta þar þrír menn gengið samsíða. Nokkrar þeirra eru sandbornar, en aðrar lagð- ar hellum og hnullungsgrjóti, sem raðað er ofan í leir- inn, og eru götur þessar skófrekar og illar umferðar. Þegar gott er veður sitja allir, sem geta, utandyra við vinnu sína, fyrir framan húsin.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.