Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Side 29

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1926, Side 29
IDUNN Örlög Grænlendinga. Þegar líta skal, frá íslensku sjónarmiði, á horfur um sanngjörn úrslit þeirrar deilu, sem þegar er vakin bæði hjer og erlendis, út af atferli Dana á Grænlandi, hljóta menn fyrst og fremst að athuga heimsstöðu landsins, að alþjóðalögum og rjettlæti. Saga vor sjálfra bæði á Is- landi og í hinni fornu nýlendu, er einungis að því leyti markverð fyrir þetta ráðandi grundvallaratriði, sem hún skýrir frá slíkum rjettarstofnandi atburðum og tilhögun í móðurlandinu, með nýbygðinni vestra, er að þessu lúta. Þessi meginþáttur málefnisins hefur að nokkru verið rakinn.1) Rjettarstaða Grænlands að fornu hefur orðið deiluefni milli nokkurra íslenskra rithöfunda í islenskum tímaritum og blöðum austan og vestanhafs. Sjerstaklega hefur einn af kennurum háskólans, Olafur prófessor Lárusson, gjört sjer far um að sýna fram á, að Græn- lendingar hafi stofnað sjer sjálfstætt ríki, en að þessi ríkisstaða þeirra hafi glatast við Gamla sáttmála, sem var saminn jöfnum höndum milli Noregskonungs og beggja eylandanna.2) I ritgjörðum nokkrum, sem jeg hef birt bæði hjer og í Vesturheimi, hef jeg leitast við að hrekja þessa skoðun, og hafa orðið góðar undirtektir undir það hjá ýmsum höfundum í blaðagreinum, auk þess sem vitnað hefur verið til erlendra vísindamanna í sömu 1) Sbr. eptirfarandi ritsjá. 2) Sbr. einnig greinar próf. Finns ]ónssonar og bókavarðar Halldórs Hermannssonar.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.