Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1930, Qupperneq 15
ÍÐUNN
Á Alþingi 1631.
9
höfðu verið saman við háskólann í Kaupmannahöfn. En
undir heimboðinu bjó meira en vináttan ein. Þorlákur
Skúlason, biskup á Hólum, var nýkvæntur systur Vig-
fúsar, og hann hafði skrifað til Bræðratungu, að hann
mundi ríða til þings um sumarið. Vigfús vildi hafa sem
nánastar fregnir af fyrirætlunum Brynjólfs áður en hann
hitti mág sinn. Hann var einráðinn í því að leita full-
tingis hans Brynjólfi til handa. Honum þótti nóg um að
vita tvo syni Odds biskups sækjast eftir æðstu yfirráð-
um í landinu.
Vigfús og Brynjólfur riðu saman til Alþingis, og herra
Þorlákur hét þeim undir eins sinni liðveizlu. Þó að
hann væri yfirmaður annars biskupsdæmis, vildu prestar
sunnan lands fegnir heyra tillögur hans um kosninguna.
Allan miðvikudaginn höfðu prestarnir setið hér á ráð-
stefnu, og herra Þorláki hafði auðnast að teygja um-
ræðurnar fram undir kvöldið, þar til allur kennidómur-
inn var orðinn svo svangur og þreyttur, að menn tóku
þeirri tillögu hans fegins hendi, að fresta biskupskjör-
inu til morguns. En hann hafði auðsjáanlega notað
kvöldið vel. Agreiningurinn hafði vaxið stórum síðan í
gær, og æ fleiri raddir tóku að krefjast úrslita.
Austur undir Hrafnagjá, langt frá flestum öðrum, en
með útsýn til kirkjunnar, sátu báðir hinir ungu menn,
sem valdir voru að sundrung kennidómsins, — sátu hér
að vilja hins eldri, en mjög á móti skapi yngra manns-
ins, sem alt af var að horfa til kirkjunnar.
Vigfús Gíslason var lítill maður vexti, grannur og
stæltur, augun dökkblá og stór, snör og harðleit. Þetta
fríða, fölleita andlit bar keim af kvenlegum fínleik, en
karlmannlegur var hann í öllu fasi, eldsnar jafnt í svör-
um og hreyfingum. Hann var mestur skartmaður hér á
þinginu og hafði hér fyrstur tekið upp tízku ungra