Kirkjuritið - 01.09.1953, Page 28
174
KIRKJURITIÐ
mikill áhugi á að ljúka smíðinni sem allra fyrst, og hafa margir
gefið til byggingarinnar bæði fé og vinnu. Einnig er byrjuð
bygging Neskirkju í Reykjavík, og unnið verður í sumar að
því að steypa grunninn að Hallgrímskirkju á Skólavörðuhæð.
í Borgarnesi er einnig verið að hefja kirkjusmíði, og mun þar
verða reist myndarleg kirkja. Aðdáunarverður áhugi hefir kom-
ið þar fram, til mikillar sæmdar fyrir Borgnesinga. Jafnvel kon-
ur og unglingar hafa að undanförnu unnið að grunninum í
sjálfboðavinnu.
Viðgerðir hafa farið fram á ýmsum eldri kirkjum. Má þar
nefna Stóradalskirkju undir Eyjafjöllum, Gaulverjabæjarkirkju,
Svalbarðskirkju í Þistilfirði, Holtskirkju í Önundarfirði, Norð-
tungukirkju, Hofskirkju í Álftafirði o. fl. Margir söfnuðir hafa
hug á að hefjast handa um kirkjubyggingar hið allra fyrsta.
Það, sem hamlar, er engan veginn áhugaleysi fólksins, heldur
annars vegar erfiðleikar á að fá nauðsynleg fjárfestingarleyfi
og hins vegar skortur á lánsfé til kirkjubygginga, en úr því er
að nokkru bætt með frumvarpi því um kirkjubyggingasjóð, sem
áður er getið, ef að lögum verður. Eins og nú er, er það í raun-
inni aðeins Hinn almenni kirkjusjóður, sem lán veitir söfnuð-
um til kirkjubygginga og aðgerða eldri kirkna, en fjármagn
hans er svo takmarkað, að hann getur ekki fullnægt lánaþörf-
inni nema að sáralitlu leyti. Á síðastliðnu ári voru lán veitt úr
sjóðnum að upphæð samtals kr. 325 þúsundir. Er það að vísu
hærri upphæð en nokkru sinni áður, en hrekkur þó harla
skammt.
Byggingarmálum prestssetranna miðar hægt áfram. Verður
því ekki neitað, að sum og raunar flest hinna óveittu presta-
kalla eru prestslaus eingöngu vegna þess, að bygging á þeim
er ýmist engin eða með öllu óviðunandi. Byggingarmál prests-
setranna, bæði að því er íbúðarhús og útihús varðar, er orðið
svo mikið alvöru- og vandamál, að ég hefi ekki talið að hjá þvl
verði komizt að ræða það nokkuð hér á prestastefnunni. Fé það.
sem árlega er veitt á fjárlögum í þessu skyni, hrekkur harla
skammt eins og ykkur prestunum er kunnugt og sumir ykkar
hafa fengið átakanlega að reyna. Skipulagsnefnd prestssetra
hefir gert ítarlega athugun á bygginga- og ræktunarþörf a
prestssetrunum og tillögur um, hvernig hún telur heppilegast að