Kirkjuritið - 01.09.1953, Page 38

Kirkjuritið - 01.09.1953, Page 38
184 KIRKJURITIÐ í byggingar- og ræktunarmálum prestssetranna nú. Jafnframt lítur prestastefnan svo á, að í þeim prestaköllum, þar sem svo hagar til, að prestssetur á ábýlisjörð hefir verið lagt niður og flutt á annan stað, beri ríkisstjóm sérstök skylda til að byggja hið bráðasta nýtt prestsseturshús. íslenzk menning og tunga. íslenzkir prestar telja það sjálf- sagða skyldu sina að standa vörð um menningararf þjóðarinnar. Þeir vænta þess, að íslenzk stjórnarvöld haldi fast á öllum rétti íslendinga og skora á allar menntastofnanir og heimili þjóðar- innar að vera á verði í þessum efnum, innræta börnum og unglingum ást á föðurlandinu, lotningu fyrir móðurmálinu minnugir þess, að þjóðin deyr, ef tungan spillist eða glatast. Skálholtshátíð 1956. Prestastefnan lítur svo á, að í sambandi við væntanlega Skálholtshátíð 1956 þurfi þegar að gera ráð- stafanir til þess, að út verði gefið vandað Skálholtsrit, er geymi sögu staðarins, biskupatal ýtarlegt, sögu skólans og skólameist- aratal, sögu og lýsingu Skálholtskirkju og þann fróðleik annan um staðinn, er mestu varðar menningar- og kristnisögu lands- ins. Telur prestastefnan eðlilegast, að kjörin yrði ritnefnd, sem gerði áætlun um verkið og hefði umsjón með því, en fæli fraeði- mönnum að rita einstaka þáttu þess. Athugun á eignum kirkjunnar að fornu o. fl. Prestastefnan fagnar því, að kirkjuráð hefir þegar ákveðið að láta fara fram rannsókn á því, hvaða eignir tilheyrðu kirkjunni um siðaskiptn með hvaða heimildum eignir hafi runnið í konungssjóð og hverjum þeirra hafi siðan verið skilað íslenzka ríkinu, enn- fremur hvaða skyldur ríkið hafi tekizt á hendur gagnvart kirkj- unni með því að taka eignir hennar i sína vörzlu, og yfirleitt á því, hver sé réttarstaða íslenzku þjóðkirkjunnar. Morgunbænir annan synodusdaginn flutti séra Sigurjón Guðjónsson prófast ur. Seinna um daginn flutti séra Hálfdan Helgason prófastuh formaður barnaheimilisnefndar þjóðkirkjunnar, skýrslu urn störf nefndarinnar og fjársöfnun í Barnaheimilissjóð. 1 honurT1 eru nú um 103396.97 kr. Allmiklu fé hefir verið varið til rækt unar á Sólheimum í Grímsnesi.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.