Kirkjuritið - 01.09.1953, Qupperneq 72
218
KIRKJURITIÐ
ræknisiðkana, sem þessi kynslóð við hafði af mikilli alvöru og
lét ganga fyrir öllu öðru.
„Móðir mín“ er hollt lestrarefni fyrir okkar nútíma kynslóð.
Þegar ég hafði getið um hana í prédikun, kom bóndi einn til
mín, og bað mig að útvega sér hana. Hann ætlaði að gefa hana
bókasafninu í sveitinni, til þess, sagði hann, að unga fólkið
fái að vita, hvemig húsmóðirin um aldamótin stóð í stöðu sinni
og hvaða þætti í fari hennar það er að þakka, ekki sízt, að hún
afkastaði svo miklu og góðu dagsverki og gerði það að verk-
um, að synir hennar ganga fram og segja hana sæla. Hamingj-
an gefi, að þeir, sem nú eru börn, geti gefið sínum mæðrum
líkan vitnisburð.
G. Br.
Erlendar fréttir.
Hátíðahöld í Þrándheimi.
Mikil hátíðahöld fóru fram í Þrándheimi 26. júlí — 2. ágústs
til minningar um það, að 8 aldir eru nú liðnar frá stofnun erki-
biskupsstóls í Niðarósi. Voru boðnir til þessara hátíðarhalda
erkibiskupar, biskupar og aðrir kirkjuhöfðingjar ýmissa þjóða.
Aðalhátíðin hófst 28. júlí í Riddarasalnum í Niðarósi í viður-
vist konungs. Þar flutti aðalræðuna Niðaróssbiskup Arne Fjell-
bu og gestir kveðjuávörp, einn frá hverri þjóð. Kafli úr „Geisla
var lesinn. Ennfremur flutti dr. Arne Odd Johnsen erindi um
stofnun erkibiskupsstólsins í Niðarósi og nokkur atriði úr sögu
hans.
Aðalhátíðin stóð einnig næsta dag. Var þá gengið í skrúð-
göngu til Niðaróssdómkirkju og haldin þar hátíðarguðsþjónusta.
Lundúnabiskup og Niðaróssbiskup þjónuðu fyrir altari, en Sme-
mo Oslóarbiskup prédikaði.
Næstu daga voru fluttar guðsþjónustur í ýmsum kirkjum 1
Niðarósi, og prédikuðu m. a. aðkomubiskupar. Einn daginn var
farið til Þingvallarkirkju, og flutti biskup vor erindi þar um
kirkju íslands.