Kirkjuritið - 01.10.1954, Page 30
Séra Jónmundur Halldórsson.
Fteddur 4. júlí 1874. — Dáinn 9. júlí 1954.
Föstudaginn 9. júlí s.l. lézt í sjúkrahúsi í Reykjavík
eftir skamma legu þar séra Jónmundur Halldórsson frá
Stað í Grunnavík og var jarð-
settur að Stað laugardaginn 17.
sama mánaðar við hlið konu
sinnar. Fylgdi honum til grafar
óvenju mikill mannfjöldi, er
safnaðist þar saman við gröf
hans frá Djúpi og Ströndum,
fyrrverandi sóknarbörn hans,
samstarfsmenn og vinir.
Með honum er hniginn í val-
inn svipmikill héraðshöfðingi og
andríkur kennimaður, sem öll-
um verður mjög minnisstæður,
er einhver kynni höfðu af hon-
Sr. Jónmundur HaTldórsson. urrl) mikill maður á Velli Og
mikill í reynd, svo að fár eða
enginn var hans líki á landi hér um hans daga. Hann
verður því ekki mældur á venjulegan mælikvarða, slíkt
ofurmenni var hann og batt ekki bagga sína sömu hnút-
um og samferðamenn stundum.
Séra Jónmundur var fæddur 4. júlí 1874 á Viggbelgs-
stöðum í Innri-Akraneshreppi. Voru foreldrar hans Hall-
dór Jónsson, sem síðar varð múrari í Reykjavík, og kona
hans, Sesselja Gísladóttir frá Bæ í Miðdölum.
Hann varð stúdent frá Lærða skólanum í Reykjavík
1896, en cand. theol. frá Prestaskólanum árið 1900. Heim-