Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 157

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1948, Page 157
N. Kv. FLINK STÝRIMAÐUR 147 á eftir. „Hvar er nú geitin?“ sagði hann. „Hana er hvergi að sjá, en við höfuin held- ur ekkert lianda henni að éta, svo það er víst réttast, að lofa henni sjálfri að sjá fyrir sér. — Þá er nú að fara að raða tunnunum, til þess að hafa eitthvað til að standa á.“ Þeim var nú í snatri velt út að girðing- unni, og hvolft þar, og borð lögð ofan á meðfram allri girðingunni. Þarna uppi á þessum pöllum var hægt og gott til útsjónar og varnar með hlaðnar byssurnar í liönd- unum. „Svona, bjánarnir ykkir, komið þið nú! Nú erum við undir það búnir, að taka á móti ykkur, Malajatötur!“ Frúin brá sér inn, klæddi börnin í snatri,* og morgunbæn var lesin; svo var setzt að mat. En borðhaldið var stutt; enginn hafði lyst á mat fyrir æsingi og áhyggju fyrir því, er nú tæki við. Nú var bátaflotinn rétt að kalla kominn að landi. Þeir rötuðu auðsjáanlega inn á milli skerjanna, og seglin voru þeir búnir að fella. Þeir Flink og Vilhjálmur leyndust bak við pálmatrén og gáfu öllu nánar gætur. „Bara að þeir Flink og Villi færu nú að koma inn,“ sagði frúin hvað eftir annað. „Já, þeir fara nú að koma inn,“ sagði Grafton, „en það er líka gott, að þeir hafi augun á villilýðnum í lengstu lög.“ En hvað bar nú fyrir augu þeirra, Flinks og Villa, frá fylgsni þeirra? Þeir sáu þenna óþjóðalýð þyrpast á land, og þeir sáu, að allir voru þeir málaðir og útflúraðir frá hvirfli til ilja, skreyttir strúts- fjöðrum og vopnaðir spjótum og kylfum. Þeir settu þungu og klunnalegu bátana sína hátt á land upp, og voru lengi að því. Vil- hjálmur athugaði þá vel í sjónaukanum, og það lor um hann ónota hrollur, er hann sá, hve viðbjóðslega villimannlegir þeir voru. „Já, satt er það,“ sagði Flink; „og nái þeir tökum á okkur, drepa þeir okkur og éta okkur svo á eftir.“ Vilhjálm hryllti við að heyra þetta. „Eg vil taka mannlega á móti þeim og berjast við þá upp á líf og dauða, unz yfir lýk- ur!. . . . En sjáðu! Þarna koma þeir!“ „Já, þeir stefna upp að gamla húsinu. Nú förum við heim.“ „Mér sýndist eg sjá bát þarna lengra frá landi,“ sagði Vilhjálmur, er þeir gengu heim. „Nú, það er bátur, sem slitnað hefur frá flotanum. — Nú reka þeir upp liróp. Þeir Flink og Vilhjálmur flýttu sér inn um dyrnar á girðingunni, lokuðu hurðinni og settu öflugan slagbrand fyrir. Svo var því næst, að fela sig drottins vernd og varðveizlu og treysta svo á sjálfa sig. XXXVI. KAPÍTULI. „Vatn! Vatn!“ Frú Grafton lét ekki allt á sig fá, en er hún heyrði hin villtu heróp, öskur og óhljóð villimannanna glymja úr öllum áttum, þá greip hana í fyrstu ótti og skelfing. En til allrar hamingju hafði hún þó ekki séð, hve óumræðilega viðbjóðslegir þeir vorú, því þá hefði hún þó orðið enn skelkaðri. Albert litli og Karólína héldu fast í móður sína; ekki grétu þau, en horfðu allt í kringum sig, því þau skildu eigi, livaðan þessi óp og óhljóð gætu komið. Tom var nú önnum kafinn að éta, því liann hafði tekið að sér að éta allar leifar á borðinu og gekk hetju- lega fram í því. Grafton hafði gert nokkur göt á skíð- garðinn, til þess að skjóta í gegnum, án þess þeir væru sjálfir í verulegri hættu. Flink og Vilhjálmur stóðu reiðubúnir með byssur sínar, er óvinirnir kæmu. „Þeir hljóta nú að fara að koma,“ sagði Flink, „þegar þeir eru búnir að skoða gamla húsið.“ „Þeir eru á leiðinni," sagði Vilhjálmur, „og annar stelpuskrattinn, sem strauk frá 19*
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.