Eimreiðin - 01.01.1931, Blaðsíða 60
40
REIKNINGAR ÍSLENZKA RÍKISINS
EIMREIÐIK
synleg nýmæli um endurskoðun ríkisreikninga. Er það helzt, að
endurskoðun á reikningum allra þeirra stofnana, sem reknar
eru fyrir ríkisins reikning og reikningsskil gera til ríkisbók-
haldsins, verði framkvæmd af fjármálaráðuneytinu, og sé jafn-
framt fenginn í ráðuneytið endurskoðunarfróður maður, sem
hafi umsjón með allri endurskoðunir.ni og framkvæmd vanda-
samasta hluta hennar.
Með þessu er tvent fengið. Endurskoðunin verður ódýrari.
Hingað til hefur endurskoðun ýmsra ríkisstofnana og sjóða
sem eru í vörzlu ríkisins, verið falin ýmsum mönnum sem
aukastörf, og há laun oft og tíðum verið greidd fyrir tiltölulega
lítið starf. Endurskoðunin verður og miklu tryggari en áður.
Þeir, sem falin hefur verið endurskoðun hingað til, hafa oft
enga sérþekkingu haft í reikningsfærslu og endurskoðun, og
því alls eigi haft það vald á verkefnunum, sem nauðsynlegt
er til fullrar tryggingar. Með fyrirkomulagi því, sem frum-
varpið gerir ráð fyrir, hefur sérfræðingurinn umsjón með allri
endurskoðun, og á þar með að vera fengin trygging fyrir því,
að hún verði framkvæmd á réttan hátt.
Ætlunin með frumvarpinu er sú að lögfesta fullkomið
skipulag í þessum efnum. Er þess og hin mesta þörf,
til tryggingar því, að vel sé frá þessum vandamálum gengið
til frambúðar. Með línum þessum vildi ég vekja athygli al-
mennings á þessu merkilega máli. Fjármálin hljóta ætíð að
verða stærstu mál hverrar þjóðar, en jafnframt hafa þau þótt
erfið og flókin viðfangs. Með umbótum á reikningum ríkisins
er nú unnið að því að gera mönnum auðveldara en áður að
fylgjast með og mynda sér skoðanir á þessum efnum. Má
ætla, að allar þær breytingar, sem miða að því að gera reikn-
ingsfærsluna glögga og árangur ríkisbúskaparins auðsærri en
áður hefur verið, verði vinsælar hjá almenningi.
Evsteinn Jónsson.