Eimreiðin - 01.01.1931, Blaðsíða 68
í EFTIRLEIT
EIMREIÐIN
48
þær stórhríðar, sem þá höfðu yfir dunið. Var hann ókalinn
og vonum hressari eftir svo langa og stranga útivist, einn
síns liðs í óbygðum, í stórhríðum og skammdegi.
Þennan sama dag, 26. dez., höfðu komið menn sunnan úr
sveitinni út í Reykjahlíð, þar sem símastöðin er, til að leita
frétta af ferðum Benedikts, og þegar þær fengust litlar sem
engar var ákveðið að fara að leita hans annan dag þar frá,
28. dez., ef hann yrði þá enn ókominn, og búa sig þá vel út
með hjálpargögn, s. s. sleða, skjólföt, hitunartæki o. fl. Var
því ekki gert aðvart frá Reykjahlíð suður í sveitina strax er
Benedikt kom. — En þegar að morgni þ. 27. brugðu menn
við suður í sveitinni og fóru þaðan beint austur á fjöll að
leita hans, degi á undan sammæltum mönnum úti í sveitinni.
Þetta fréttist að Reykjahlíð þann sama dag, og fór þá maður
þaðan austur á eftir þeim. Hittust þeir í Krókmel morguninn
eftir, og þar voru kindurnar fyrir allar saman; komu þeir svo
með þær til baka ofan í sveit og gerðu forustusauðnum skó
að ganga á að austan, því svo var hann sárfættur orðinn.
Lýkur hér frásögninni af þessari ferð Benedikts, en tvaer
eftirleitarferðir segist hann hafa farið verri en þessa eða meiri
svaðilfarir. I annari þeirra fann hann nær 30 kindur og komst
þá út í »sæluhús« við svo illan leik — í stórhríð auðvitað —
að hann var víða orðinn ber, því fötin höfðu frosið svo og
brostið sundur. Varð hann að grafa sig í fönn öðru hvoru til
að þíða fötin og brjótast svo áfram nokkurn spöl, meðan þau
voru að stokkfrjósa aftur. Rétt eftir að hann kom í »sælu*
húsið* var kallað af austurbakka árinnar, hljóp þá Benedikt
út og heldur fáklæddur þó. Voru þar komnir tveir menn
heiman frá Grímsstöðum að vitja hans og færa honum mat.
En áin var ófær bæði ferju og gangandi manni, því hún var
uppbólgin af lítt frosnu krapi. Þó lagði annar þeirra Gríms-
staða-manna á ána, á skíðum, þrátt fyrir mótmæli og aðvar-
anir frá Benedikts hálfu. Enda var hann skamt frá landinu
kominn er krapið fór af stað og rak hann með því undan
straumi 1 —1!/2 km.; þá settist það að á eyri í austanverðri
ánni, og var þá sá maður úr mesta háskanum sloppinn. Fór
þá félagi hans heim í Grímsstaði að fá menn til hjálpar. En
Benedikt beið þar á vesturbakkanum og fékk ekki að gert.