Eimreiðin - 01.01.1931, Blaðsíða 62
42
í EFTIRLEIT
EIMREIÐIN
Á vetrum, þegar menn úr Mývatnssveit eru þarna austur frá
í hestagöngum eða kindaleit, fara þeir þó stundum heim á
Hólsfjalla-bæi til gistingar. En þá verður að biðja um ferju
yfir ána fyrirfram símleiðis frá Reykjahlíð, því að frá ferju-
staðnum eru 4 km. heim að Grímsstöðum á Fjöllum, en sá
bær er næstur.
Benedikt heitir maður, Sigurjónsson, á Skútustöðum við
Mývatn. Hann er annálaður fyrir margar svaðilfarir um Mý-
vatnsfjöll í kindaleitum; hefur hann nokkrum sinnum fengið á
köldu að kenna í skammdegis-stórhríðum fjarri mannabygðum
og þá sýnt furðulega þrautseigju, karlmensku og áræði. Allra
manna oftast hefur hann farið í kindaleit suður í Grafarlönd
eða 27 ferðir alls. Hann er nú 54 ára að aldri og ekki loku
fyrir það skotið, að honum megi enn auðnast að fara í margar
eftirleitir.
Hér verður nú sagt af einni eftirleitarferð Benedikts eftir
•því, sem hann hefur sjálfur sagt þeim, er þetta ritar.
Að kvöldi þess 8. dezember 1925 komu nokkrir menn úr
Mývatnssveit að Reykjahlíð. Var það ætlun þeirra að leggja
af stað þaðan að morgni næsta dags austur á fjöll að smala
saman sauðfé því, er gengið hafði þar úti frá því um haustið.
— Einn þessara manna var Benedikt Sigurjónsson. Þann 9.
dez. voru þeir um kyrt í Reykjahlíð, því þá var norðan stór-
hríð. — 10. dez. var betra veður og þó norðan nepja með
renning og hríðarél. Fóru þeir þá austur eftir á skíðum og
gistu nóttina eftir í kofanum við Hrauntagl. Þrjá dagana næstu,
11.—13. dez., voru þeir að smala saman fénu þar austan við
Nýjahraun og leita að því, sem vantaði. Hríðaði lítið þá daga,
og voru allgóð veður, frostmikið þó. Þann 13.—14. dez. ráku
þeir féð að austan ofan í Reykjahlíð, nema Benedikt Sigur-
jónsson, sem varð eftir til að leita enn betur að þeim kind-
um, sem í hjörðina vantaði. Einnig hafði hann eftir forustu-
sauð góðan og vitran, er hann átti; sá sauður hét Eitill og
var þá tveggja vetra. — Þann 12. dez. hafði maður komið
neðan úr sveit þar austur á fjöllin til að sækja hross, og leit-
aði Benedikt þeirra með honum þ. 14.; fundu þeir þau langt
morður við veg, þar sem heitir Norðmelshæð. — Daginn eftir,