Eimreiðin - 01.01.1931, Blaðsíða 50
30
REIKNINGAR ÍSLENZKA RÍKISINS
eimreiðin
greidd var, hafi verið talin með föstum lánum í landsreikn-
ingi árið áður.
Það á að skera úr um færslu þessarar upphæðar, og þá
jafnframt, hvort tekjuafgangur ríkissjóðs þetta ár er liðl. 5
milj. eða liðl. 4ll2 milj., í hvorum skuldaflokknum (lausar
skuldir eða föst lán) upphæðin var talin á efnahagsskýrslu
fyrra árs.
Svar ráðherra við athugasemdinni hljóðar svo (Landsr.
1925, bls. 91):
»Það er álitamál, hvort rétt hafi verið að telja þetta Ián
með »föstum« þ. e. samningsbundnum lánum í eignaskýrslu
1924, þar sem lánið var þá alt fallið í gjalddaga, vegna þess
að lánssamningurinn hafði verið alveg vanhaldinn*.
Tillögur endurskoðenda um þetta eru á þessa leið (Landsr.
1925, bls. 99):
»Gefur ekki tilefni til úrskurðar*.
Endirinn verður því sá, að eigi er unt að ákveða, hvort
tekjuafgangur sé í raun og veru J/2 milj. króna minni en
reksturreikningur sýnir, eða eins og þar er talið. Ráðherra
telur það álitamál, en yfirskoðunarmönnum gefst ekki tilefni
til úrskurðar eða frekari greinargerðar um þetta atriði. Það er
eftirtektarverðast í meðferð þessa máls, að eigi er um það
rætt, hvort upphæðin sé raunveruleg rekstursútgjöld, en það
aetti þó að skera úr um færslu hennar, en eigi hitt, hvort
skuldin, sem greidd var, hafði verið talin lausaskuld eða eigi
í efnahagsskýrslu. Skiftir slíkt ekki máli í þessu sambandi, ef
reikningarnir væru færðir eftir réttum reglum.
Sýnir þetta dæmi ljóslega, hve niðurstöður landsreikningsins
(þ. e. a. s. rekstursreikningsins) hafa verið ótryggar og nær
því af handahófi. Nefna mætti dæmi um svipuð mistök frá
ýmsum tímum, en eigi er ástæða eða rúm til slíks.
Nú hefur verið minst á rekstursreikninginn, og sýnt fram
á, að svo sem honum hefur verið hagað, ber hann eigi nafn
með réttu og sýnir eigi rekstursniðurstöðu þjóðarbúsins. Enn
er þó ótalinn annar höfuðgalli reiknings þessa, og verður eigi
hjá því komist að minnast hans í þessu sambandi. Þeirri venju
hefur verið fylgt að telja eigi til tekna eða gjalda annað en
inn- eða útborganir í sjálfan ríkissjóðinn. Af þessari aðferð