Eimreiðin - 01.01.1931, Blaðsíða 84
A MÓTUM TVEGG]A ÁRÞÚSUNDA ” eimreiðiN
•64
Karl Hildenbrandt, fv. ræðis-
•maður, fulltrúi þýzka þingsins
á alþingishátíðinni.
Emil Berndt, borgarstjóri,
fulltrúi þýzka þingsins á
alþingishátíðinni.
Hermann Hofmann, yfirkennari,
fulltrúi þýzka þingsins á
alþingishátíðinni.
að koma í ljós í lækkuðu verði á
innfluttum vörum. Styrkbruðlið úr rík-
issjóði verður að hverfa, — ríkisómög-
unum að fækka, þeim ríkisómögum.
sem eiga það sammerkt við sveitar-
ómagana, að þeir fá framfæri sitt af
opinberu fé, þ. e. a. s. árangrinum af
striti framleiðendanna í landinu, en
standa að því leyti á lægra stigi en
sveitarómagarnir, að þeir blygðast sín
ekki fyrir að taka við ölmusunni. Það
gera sveitarómagarnir aftur á móti
margir, og oft að ástæðulausu, því
ekki er hægt að leggja nokkrum manni
það til lasts, þó að hann verði vegna
veikinda eða annara óviðráðanlegra
orsaka að þiggja hjálp frá öðrum-
Vér þurfum að gera oss grein fyrir
því, hvar vér stöndum, og gera það
alveg gyllingalaust. Slíkt er engin
svartsýni. Þvert á móti er það eina
leiðin til þess að vér séum færir um
að mæta framtíðinni ótrauðir. Því að-
eins ganga menn gunnreifir til dáða,
að þeir sjái hættuna og meti hana
réttilega. Og því aðeins verður komið
í veg fyrir hana.
* *
*
Þúsund ára afmæli alþingis hefur
verið nefnt dómsdagur þjóðarinnar-
Þetta ætlar að reynast réttnefni. Við-
burðir ársins hafa gefið athugulum
áhorfanda glögga sýn yfir fúafen þjóð-
lífsins. Bókum hefur verið lokið upp'
Verkin hafa talað, og rykið, sem sífelt
er verið að þyrla í augu almennings,
leysist upp fyrir geislum komandi dagS'