Eimreiðin - 01.01.1931, Blaðsíða 74
54
Á MÓTUM TVEGGJA ÁRÞÚSUNDA
EIMREIÐIN
Newton lávaröur,
fulltrúi brezka þingsins á
alþingishátiöinni.
Marks lávaröur,
fulltrúi brezka þingsins á
alþingishátíðinni.
Sir R. Hamilton þingmaöur,
fulltrúi brezka þingsins á
alþingishátíöinni.
stöðu við velferð ríkisins, að það er
ekki nema eðlilegt þótt sterkir skap-
menn í stjórnarsessi taki að fara
fremur að eigin vilja en þingviljá, svo
að úr verði jafnvel einræði, eins og
svo mörg dæmi eru til síðasta ára-
tuginn. Þingræði nútímans verður fyrir
árásum úr ýmsum áttum, frá facistum
jafnt sem kommúnistum, íhaldsmönn-
um jafnt sem sósíaldemokrötum,
eins og meðal annars hefur komið í
ljós nú alveg nýlega af undirtektum
þessara síðarnefndu flokka í Englandi
undir einræðis- og yfir-stjórnartillögur
sósíaldemokratans Sir Oswalds Mosleys.
Vér þurfum heldur ekki að leita lengi
á íslenzka þjóðmálasviðinu til þess að
sjá, að margt af því, sem fundið er
íslenzku þingræði til foráttu, er á rök-
um bygt. Því þó að það sé ef til vill
fullhart að orði kveðið, sem Sigurður
fyrv. sýslumaður Þórðarson segir í bók
sinni, Nýi sáttmáli, »að keppnin um
fjárráðin, löngunin til að bragða á
réttunum, sem farið er með, þó að
ekki megi það, síðan að nærast á
þeim, þar eftir að fylla sig á þeim og
síðast að fá aldrei nægju sína af
þeim«, sé það, sem skapi íslenzka
þingflokka, þá sýna störf þingsins
sum og umræður þar, að það er ekki
ætíð velferð ríkisins, sem látin er sitja í
fyrirrúmi á kvartmiljón króna þingi því,
sem þjóðin kostar árlega.
Alþingi Islendinga hefur á þessu
nýliðna ári verið viðurkent elzta þjóð-
þing í heimi. Það hefur verið gert
af fulltrúum stórveldanna, sem hér