Eimreiðin - 01.01.1931, Blaðsíða 82
62
Á MÓTUM TVEGG]A ÁRÞÚSUNDA
EIMREIÐIP*
V
Helge Thune, lagþingsforseti,
fulltrúi norska þingsins á
alþingishátíöinni.
Bernh. Eriksson, forseti,
fulltrúi sænska þingsins á
alþingishátíöinni.
C. H. P. Nilsson, forseti,
fulltrúi sænska þingsins á
aiþingishátíöinni.
taldar í landsreikningi. Það er vissu-
lega kominn tími til, að almenningur
fylgist betur en áður með því, hverjar
þær byrðir eru, sem á honum hvíla.
Það er vonandi hvort sem er svo mikil
sómatilfinning eftir í Islendingum vel-
flestum, að þeir reyni að standa við
skuldbindingar sínar, feðra sinna oS
forráðamanna í lengstu lög. Það verður
sennilega líka til lítils, þótt gerðar yrðu
ein eða fleiri ályktanir einhvern góðan
veðurdag um það, að þær séu oss
óviðkomandi. Að vísu rignir nú niður
ályktunum svo að segja daglega, en
hætt er við, að útlendu lánardrottn-
arnir mundu skella við þeim skolleyr-
unum og hirða heldur hólmann en
ekki neitt. Að vísu mundi þeim senni-
lega þykja sumar eignir ríkisins full-
hátt virtar, svo sem eins og stjórnar-
ráðshúsið, sem einn fyndinn Englend-
ingur líkti eitt sinn við hesthús oS
er þó virt á kr. 234900.00 í landsreikn-
ingi. En auðsuppsprettur landsins yrðu
þeim mun meira virði í þeirra augum-
Og það kynni að ríða baggamuninn.
Lána og ríkisábyrgðastefnan er
þegar komin vel á veg með að leiða
þjóðina út í ógöngur. Allir, sem vilja
og nenna að hugsa, sjá í hendi sér,
að þegar í stað verður að grípa >
taumana. Fyrirtæki eru starfandi »
landinu, sem velta sparifé landsmanna,
lánsfénu frá bönkunum, (og þar af
leiðandi með ábyrgð ríkisins), árangr-
inum af striti kynslóðanna, en eru þó
svo stæð, að ekkert má út af bera
um verðlag, framleiðslu og árferði til