Eimreiðin - 01.01.1931, Blaðsíða 100
80
RAUÐA DANZMÆRIN
EIMREIÐlN
hvernig þér, sem eigið heima hér í París, hafið gelað komist
yfir jafnþýðingarmikið leyndarmál og þelta?«
»Mér er oft boðið á heimili ýmsra erlendra sendiherra til
þess að skemta gestum þeirra. Og sumum þessara sendiherra
er ég svo nákunnug, að ég get hlustað á samræðurnar undir
borðum heima hjá þeim. Þessir herrar eru ekki altaf eins
þagmælskir eins og þeir ættu að vera. Nýlega var ég í mið'
degisveizlu hjá einum þeirra og hlustaði þar á samræður mn
þessa neðansjávarbáta, — og mér datt í hug, að ykkur gæti
komið vel að fá að vita um þetta*.
Að nokkrum dögum liðnum fékk Mata Hari skilaboð um
að mæta á skrifstofu njósnarliðsins. Ledoux kapteinn skýrði
henni frá því, að upplýsingar hennar um þýzku neðansjávar-
bátana hefðu reynst réttar. Nótíina áður hafði tveim þeirra
verið sökt, er þeir voru að skipa skotvopnum í land á
Mehediya-höfninni.
»Við höfum nú fengið fulla sönnun fyrir hollustu yðar«,
sagði lögreglustjórinn í II. deild, »og ef þér haldið áfram eins
og þér hafið byrjað, mun okkur verða ómetanleg stoð að
liðveizlu yðar. Nú þurfum við aðeins að velja handa yður
það starf, að hæfileikar yðar komi að sem beztum notum-
Oetið þér ekki gert einhverjar tillögur sjálf í því efni?«
»Látum okkur sjá, herra minn. Eg hef nýlega gert samning
um að danza í Briissel. Þér vitið, að ég er hollenzkur þegn
og er því frjáls ferða minna í ófriðarlöndunum. Það er auð-
velt fyrir mig að komast til Briissel frá Hollandi, einkum þar
sem ég á áhrifaríka vini, sem munu hjálpa mér. Hvað gæti
ég gert fyrir yður í Briissel? Eigið þér ekki erfitt með að
koma skilaboðum til njósnara yðar þar? Ég mundi geta borið
þeim skilaboð frá yður, og væri fús á að hafa upp á þeim
til að flytja þeim fyrirskipanir yðar«.
»Þetta er ágæt hugmynd. Þér skuluð þá búa yður undir
þessa ferð, og þegar þér eruð ferðbúin, mun yður fengin skrá
yfir þá njósnara í Belgíu, sem vér þurfum að ráðgast við.
Með skránni verður látið fylgja bréf með öllum þeim fyrir-
skipunum, sem vér þurfum að láta flytja þeim«.
Á þenna einfalda hátt hugðist Mata Hari reka erindi hús-
bænda sinna og útvega fyrir þá þau gögn, sem þurfti til að