Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1931, Side 48

Eimreiðin - 01.01.1931, Side 48
28 REIKNINGAR ÍSLENZKA RÍKISINS EIMREIÐIN komi í ljós rekstursafgangur eða halli þjóðarbúanna. Er þess vandlega gætt að halda raunverulegum tekjum og gjöldum aðgreindum frá öðrum viðskiftum. Enda er slík aðgreining eilt höfuðatriði allrar reikningsfærslu, og meginskilyrði þess, að yfirlit fáist um fjárhag og fjárstjórn. Síðan 1923 hafa fjármálaráðherrar ekki allir fylgt sömu reglu um samning rekstursreiknings. Sumir hafa gert meira að því en aðrir að draga út úr reikningnum þær upphæðir, sem þar áttu eigi heima. Með þessu er grundvellinum kipt undan samanburðinum milli ára. Verður hann eigi gerður lil hlítar, nema reikning- arnir séu samdir að nýju og sömu reglum fylgt öll árin. Er ekki ofsagt, að aldrei hefur nokkur rekstursreikningur sýnt raunverulega rekstursniðurstöðu ríkisbúsins. Er því varhugavert að reiða sig á niðurstöður rekstursreikninganna, er dæma skal um rekstursafkomu eða gera samanburð á tekjum og gjöldum við önnur reikningsár, nema að undangenginni rann- sókn um, hversu færslu reikningsins er háttað í einstökum atriðum. Er það ljóst, að reikningsskil slík sem þessi eru alger- lega ófullnægjandi þjóðinni og þeim, sem um fjármálin annast. Oglöggum reikningsskilum fylgja stöðugar þrætur um nið- urstöður. Verða deilur þessar mjög í lausu lofti, ef reikningar eru yfirgripsmiklir og föstum og réttum reglum eigi fylgt um tilhögun þeirra. Því miður hefur borið töluvert á deilum þess- um hér á landi, einkum fyrir kosningar. Þykist ég þess full- viss, að margur kjósandi hafi við slík tækifæri leitað til landsreikninganna um úrskurð í þessum efnum, en reynst þeir óaðgengilegir af framangreindum ástæðum, ásamt öðrum fleiri, er enn hafa eigi verið raktar. Núverandi fjármálaráð- herra Dana, Bramsnæs, hélt fyrirlestur um ríkisbókhald og endurskoðun í Danmörku á fundi norrænna embættismanna, er haldinn var í Helsingfors 1925. í fyrirlestri þessum drap hann á, að síðan Danir komu hinu nýja skipulagi á ríkisbók- hald sitt og ríkisreikning, væri með öllu hætt að deila um það í Ríkisþinginu, hver væri hin raunverulega rekstursniður- staða þjóðarbúsins, en áður hefðu deilur þessar verið mjög tíðar. Snúast umræður nú um önnur atriði fjármálanna, og byggja menn ótrauðir á niðurstöðum reikninganna, sem samdir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.