Eimreiðin - 01.01.1931, Blaðsíða 32
12
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
EIMR51ÐIN
strandvarnarskipanna. — Ríkið keypti prentsmiðjuna »Guten-
berg« og rekur hana á sinn kostnað. — Útvarpið tók loks
lil starfa fyrir jólin. Átti að bvrja fyr á árinu, en ýmsar
ástæður urðu til að tefja fyrir. — Stofnuð var og einkasala
ríkisins á útvarpstækjum. — Síldarverksmiðja ríkisins tók til
starfa á síldveiðatímanum. — Gerðar voru tilraunir með snjóbíl
af nýrri gerð með þeim árangri, að fleiri voru keyptir síðar.
Af framkvæmdum einstakra manna og félaga má nefna:
Stofnun mjólkurbús í Olfusi hjá Reykjum. Mjólkurbú Flóa-
manna hafði tekið til starfa síðast á árinu 1929. Sænska
frystihúsið tók til starfa. Hótel Borg opnaði veitingadeild sína
í janúar, en gistingu ekki fyr en komið var fram á vorið.
Hvalveiðafélag var stofnað, sem á að taka til starfa á þessu
ári. Hefur það 10 ára sérleyfi til hvalveiða með 5 skipum.
Tónlistaskóli var stofnaður í Reykjavík í október, og fengnir
til hans þrír hljóðfærakennarar frá Vínarborg. Elliheimilið nýja
tók til starfa í sumarlokin.
M Meðal þjóðkunnra manna, sem létust á árinu,
og slysfarir nefna prestana dr. Valdemar Briem vígslu-
biskup og son hans sr. Olaf, sr. Jóhann Þor-
steinsson frá Stafholti, sr. Jón Þorsteinsson frá Möðruvöllum
í Eyjafirði, sr. Jens Hjaltalin, sr. Lúðvíg Knudsen og sr.
Stefán M. Jónsson á Auðkúlu. Ennfremur létust Klemens
Jónsson fyrrum ráðherra, Páll Bjarnason sýslumaður í Stykk-
ishólmi, Ólafur Halldórsson konferenzráð í Khöfn, Björn Sig-
urðsson fyrv. bankastjóri, Þorsteinn Jónsson kaupm. frá Seyð-
isfirði, Páll J. Árdal skáld, Vigfús Bergsteinsson bóndi á
Brúnum og Pétur Hafstein bæjarfulltrúi.
Af slysförum fórust um 50 manns á árinu, og er það nærri
meðaltali síðustu 5 ára. Stærsta slysið var það, er »ApríI«
fórst í dezember með 16 skipverja og 2 farþega. Þá fórust
og á árinu 4 vélbátar, einn úr Vestmannaeyjum, »Ari*, með
5 manns, einn úr Súðavík, »Sæfari«, með 4 mönnum, einn úr
Keflavík með 4 mönnum og loks einn á Seyðisfirði í hey-
flutningi innanfjarðar með einn fullorðinn mann og 6 unglinga.
— Óvenjulegt slys má það heita, að hjón á Eyrarbakka dóu
í svefni af olíugaseitrun snemma á árinu.