Eimreiðin - 01.04.1932, Side 72
192 TRÚIN Á MANNINN eimRE1Ð'n
að lifa tii þess að geta notið fyllilega og í réttum hlutföllum
þess, sem hin lægri eða æðri svið hafa að bjóða. Aðeins
þar geta menn ausið ríkulega af nægtabrunnum lífsins oS
notið þess, sem bezt er og heilsusamlegast. En þetta gefur
mönnum jafnvægið. Þannig verða menn raunsæismenn í hinni
sönnustu og beztu merkingu þess orðs, engir sár-viðkvæmn"
tilfinningamenn né draumaglópar, heldur stillingarmenn, sem
ekki láta sér við neitt bregða, dómbærir menn og glögS'
skygnir, sem sæmilega kunna að gera greinarmun góðs og ill5,
í þessu sér Irving Babbit hið æðsta viðfangsefni allrar sið'
legrar viðleitni, eins og Plato fyrir ævalöngu síðan, að hafa
rétta dómgreind og réttan þokka á góðum hlutum og illum,
því hvað sem segja má frá heimspekilegu sjónarmiði geSn
allri tvíveldishyggju, þá verður lífsreynslan alt af sú, að eer
skynjum hlutina í þessum tveim andstæðum og verðum þesS
vegna að reikna með þeim. En það, að geta öðlast rétta
dómgreind, verður aðeins fyrir rétta og hófsamlega samvinnU
milli ímyndunaraflsins og skynseminnar. Hann nefnir ímynC|'
unarafl þá tegund hugsunar vorrar, sem sækir fram ef*ir
nýjum viðfangsefnum og seilist eftir líkingum til samanburðar,
en skynsemi þá starfsemi hugans, sem sundurliðar og prófar
hverja þá hugsun, sem vér höfum þegar öðlast.
Vfirleitt má segja að þessi skóli húmanistanna leggi megin'
áherzlu á láfprýði og hófstilling, eins og Stóumennirnir gerðu
til forna. Þeir leitast við að vera hvergi einhliða, né ýHa
neitt fyrir sér úr hófi fram í skoðunum, líferni né látseö1-
Þeir leggja ekki megin áherzluna á skilninginn og samúðma,
enda þótt þetta hvorttveggja sé mikils metið hjá þeim, heldnr
á hið rétta mat verðmætanna eða öllu heldur hið rétta va
meðal þeirra.
II.
Gegn þessum skóla ráðast svo ýmsir mikilsmetnir heim
spekingar og rithöfundar Bandaríkjanna svo sem H.
Mencken, ]ohn Dewey, dr. Harry Elmer Barnes, Theodore
Dreiser og fleiri, sem telja þessar skoðanir hið mesta mol
viðri og ranglega nefndan húmanisma, en setja sjálfir fraIT1
aðrar skoðanir, er þeir telja meiri arftaka fornmentastefn