Eimreiðin - 01.07.1938, Blaðsíða 38
270
ULLARMALIÐ
eimreiðiN
skriflega eða niunnlega, og kynna sér það, sem þegar er fram
komið.“ Kvarta Svíar undan að þessari grein hafi ekki verið
framfylgt, og þeim ekki gefinn kostur á að gæta réttar síns.
í andsvarinu var bent á það, að ef útlendingur, sem á eignir
á íslandi, tilkynnir ekki hver sé umboðsmaður hans, skoði
islenzk löggjöf vörzlumann eignanna, sem umboðsmann eig-
anda. Gildi það auð\itað alveg sérstaklega þegar ekki sé kunn-
ugt um hver sé eigandi, en það vissu hinir íslenzku vörzlu-
menn ekki að jafnaði. Og þó þeir nefndu menn, sem þeir töldu
eigendur, vissu þeir ekki að þessir upphaflegu eigendur hafi
selt ullina, né að hinir nýju eigendur hafi verið búsettir i
Svíþjóð.
Hitt sé viðurkent, að eigendur ullarinnar hafi vitað um kröf-
una um sölu til stjórnarinnar í tæka tíð, því þeir hafi snúið
sér til sænska utanrikisráðuneytisins þann 7. júní, þ. e. tveimui
dögum áður en frestur rann út, og óskað eftir vernd. Hafi Þ:l®
þó hvorki varað íslenzku stjórnina við, né beðið sænska ræðis-
manninn í Reykjavík um að gæta réttar sænskra þegna. Meira
að segja hafi ekki komið skrá yfir alla ullareigendur fvrr en
þann 1. september 1919, er þeir gerðu kröfu til að fá andvirðið
greitt. Það er þó viðurkent að það muni hafa gleymst að til-
kynna vörslumönnum ullarinnar á Seyðisfirði, að hún hafi
verið tekin eignarnámi. Hinsvegar muni það ekki hafa sett
eigendur þeirrar ullar í verri aðstöðu eða skapað þeim fjárhags-
legt tap frekar en öðrum, og nnini því rétt að einn dómur gang1
um alla ullareigendur.
Enda þótt sáttanefndin hafi ekki látið þetta atriði varða
viðurlögum fyrir íslenzku stjórnina, verður það að viðurkenn-
ast að lögin um eignarnám, dags. 14. júní 1918, voru harð-
neskjuleg um skör fram. Timafresturinn var mjög stuttur, sei-
staklega þegar þess er gætt, að eigendur ullarinnar voru er'
lendis. En þegar ekki er hægt að ónýta smá-skuldabréf sarnkv-
íslenzkum lögum, nema með ítrekaðri innköllun í Lögbirtinga-
blaðinu, sýnist hér skorta réttarvernd þeim mönnum til handa,
sem ekki höfðu tækifæri til að fvlgjast með stjórnarathöfnuni
á íslandi. í nefndina var heldur ekki skipaður neinn inaður.
sem sérstaklega mætti telja fróðan um ullarverzlun, eða ga’h
talist umboðsmaður ullareigenda. Og þegar um miljóna ver®