Eimreiðin - 01.07.1938, Blaðsíða 95
eimreiðin LISTAMAÐURINN OG FOSSINN 327
Þannig leið tíminn. Nágrannar listamannsins unga höfðu
h°rn í sjgu hans. Jafnaldrar hans hlógu að honum og kölluðu
^ann ýmsum nöfnum, þegar þeir hittust í fjárleitum og á
niannamótum. Þeir sögðu, að hann þekti ekki sauð frá á eða
geniling frá tófu. — Hann var ekki fjárglöggur, það var satt,
°g sitt af hverju var hægt að finna að vinnubrögðum hans.
Sumir kölluðu hann Hans klaufa.
I3að var nú raunar ekki vel valið nafn, þvi að hann var
dverghagur. En það festist við hann eigi að síður. Og sá orð-
r°mur komst á fót, að hann væri ómögulegur til allrar vinnu,
'andræðagripur hinn mesti og svo kyndugur í háttum, að vafa-
sanit væri, að hann gæti talist með öllum mjalla.
Ekkert af þessu var satt. En eigi að síður rótfestist þetta álit
1 hugum manna og setti svip á dagleg umræðuefni. „Hann er
Vlst genginn út úr hömrum, drengurinn þarna við gilið,“ sögðu
sUmir. „Ætli hann hverfi ekki heldur inn í einhvern hólinn
hamarinn,“ sögðu aðrir. „Hann á hvort sem er meira sam-
eiginlegt með tröllum og álfum heldur en almennilegum mönn-
Um.“ Og þegar hann kom þar að, sem fjörugar viðræður fóru
trani> þögnuðu allir eða breyttu um umtalsefni. Það kólnaði
°8 dimdi umhverfis hann líkt og þegar ísköld næturþoka
Þjapþar að einstæðings vegfaranda.
Sunnudagsmorgun einn sat hann niður við ána og var að
teikna mynd af fossinum, sem árdegisskinið baðaði í geisla-
Eóði. Fjölmennur hópur kirkjugesta reið eftir árbökkunum.
heir hægðu reiðina, um leið og þeir fóru framhjá honum, svo
hann gat vel heyrt orðaskil. Gárungi nokkur i hópnum,
sem hann þekti vel, sagði einhverja ruddalega fyndni um „álf-
11111 úr hólnum við gilið“. Þetta þótti hinu fólkinu í hópnunj
hráðskemtilegt. Og svo fóru allir að skellihlæja. Hann heyrði
óminn af hlátrum og hófaskelluin lengi, lengi. Fleiri hópar
^ói'u fram hjá. í öllum þeirra hafði einhver eitthvað að segja
11111 drenginn óvenjulega, sem ferðafélagarnir höfðu ganian af.
Eg hlátrarnir sáðu æ meiri og meiri beizkju í hjarta hans. Loks
stóðst hann ekki lengur inátið og lagði á flótta upp með gili.
Eann vildi hverfa burt úr augsýn þessa fólks. En því fékk
hann ekki að vera í friði fyrir því? Hafði hann nokkuð gert á
hluta þess? Ekki fanst honum. Ekki annað en það að ganga