Eimreiðin - 01.09.1960, Page 56
240
EIMREIÐIN
BalliS í Hritna
Dansinn dunar kátt,
dyr í hálfa gátt.
Kuldalegur rómur kallar hátt:
Kirkjan sekkur brátt.
Og ótal raddir svara:
Sökki hún bara.
Kve&ja til Rauða hersins haustið 1956
Hatrið um heiminn flæðir
og hrynur til fóta mér.
Andar í kvæðið klökkva,
kvölin í hjartað sker
og þó skal ég blanda blóði
og berjast með þér.
Svo æddu þá, vinur, yfir
álfuna vestanhalt,
og ástvinur okkar hinna
ætíð þú vera skalt.
Þrátt fyrir þessa daga
og þrátt fyrir allt.
Jón Thor, er ungur menntamaður, sem kernur hér frarn í fyrsta sinn opi'1
berlega sem Ijóðskáld. Hann er dóttursonur Theódóru Tlioroddsen skálá
konu, en foreldrar hans eru María Skúladóttir, Thoroddsen og Haraldur
Jónsson, héraðslæknir í Vík. Jón er l'æddur 13. apríl 1933, lauk stúdentspn
ófi
frá Menntaskóla Reykjavíkur 1954, hefur síðan lesið sagnfræði við Óslóai
háskóla og lauk þar prófi síðastliðið vor.