Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 28

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 28
SAMSTARF HEIMILA OG FRAMHALDSSKÓLA þrjá flokka: Ekkert samstarf, lítið samstarf og töluvert samstarf. Flokkun skólanna var síðan notuð við gerð úrtaks, þar sem dregnir voru út tveir skólar, einn áfanga- skóli og einn bekkjarskóli, úr hverjum flokki. Var þetta gert til að tryggja að í úrtak- inu væru skólar sem endurspegluðu allar gerðir foreldrasamstarfs og ólíkar gerðir skóla þannig að það gæfi rétta mynd af þýðinu. Til að kanna viðhorf fólks til samstarfs var lögð fyrir könnun í sex framhalds- skólum. í nemendaúrtaki voru 320 og svöruðu 314 eða 98%. í foreldraúrtaki voru 296 og endanlegt svarhlutfall var 187 eða 63%. í kennaraúrtaki voru 319, skil voru 193 eða 60,5%. Lélegt svarhlutfall foreldra og kennara rýrir nokkuð niðurstöður rannsóknarinnar og því varasamt að alhæfa niðurstöðurnar yfir á alla foreldra og kennara. Einnig gæti verið skekkja í úrtakinu á þá leið að þeir sem hafa áhuga á málinu hafi frekar svarað en þeir sem eru áhugalausir. Að vísu var gerð brottfalls- könnun meðal foreldra þar sem tekið var tuttugu manna slembiúrtak úr brottfalli og viðkomandi foreldrar beðnir um að svara könnuninni í gegnum síma. Spear- mans hró fylgnistuðullinn var notaður til að bera saman svör brottfallshóps við svör foreldra og kom alls staðar fram marktæk fylgni á svörum þessara tveggja hópa. Er það vísbending um að úrtakið sé ekki mjög skekkt og að brottfall hafi jafn- vel óveruleg áhrif á niðurstöður foreldrakönnunar. Framkvæmd Könnun á umfangi samstarfs (umfangskönnun) fólst í því að tekin voru viðtöl við skólastjóra og/eða námsráðgjafa í flestum framhaldsskólum á höfuðborgarsvæð- inu. í viðtölunum voru notaðar fyrirfram ákveðnar spurningar sem fylgt var eftir með frekari spurningum, þar sem spurt var nánar út í ákveðin atriði eftir aðstæð- um. í kjölfar þessara viðtala var búinn til spurningarlisti þar sem reynt var að koma inn á öll þau atriði er komu fram í viðtölunum. Þessi spurningarlisti var síðan send- ur til allra framhaldsskóla úti á landi þar sem ekki reyndist unnt að heimsækja þá. Viðhorf nemenda, foreldra og kennara til samstarfs var athugað með spurningar- könnun (megindleg aðferð). Könnunin var lögð fyrir þessa þrjá hópa þar sem sam- starf heimila og skóla snertir alla þessa aðila og ræðst af virkni þeirra og áhuga (Ferm 1994). Spurningarlisti var unninn með hliðsjón af gátlista þróuðum af kennur- um Kvennaskólans en listirtn var notaður við úttekt á skólanum (Kvennaskólinn í Reykjavík 1995). í þessari rannsókn var nýttur sá hluti listans er fjallar um samstarf heimila og skóla. Einnig var notast við spurningarlista eftir Schaeffer og Betz (1992). Þar sem ekki fannst tilbúinn spurningarlisti sem nýttist í þessari rannsókn voru þar að auki samdar nokkrar spurningar með hliðsjón af fræðilegri umræðu og tilgátum verkefnisins. Gerðir voru þrír spurningarlistar, einn fyrir nemendur, annar fyrir for- eldra og sá þriðji fyrir kertnara. Listarnir eru í meginatriðum eins en þeir eru sniðnir að mismunandi úrtakshópum og ólíkum aðstæðum þeirra. Spurningarlistarnir voru athugaðir með tilliti til áreiðanleika og réttmætis og forprófaðir í einum skóla. Urvinnsla I umfangskönnuninni var fundið miðgildi jákvæðra svara og þeir skólar sem voru með lægra gildi flokkaðir með lítið samstarf við heimili, en skólar með jafnmörg 26
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.