Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 35

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 35
ELÍN THORARENSEN ur í framhaldsskólum virðast ekki vita hvað átt er við með samstarfi heimila og skóla og þekkja ekki þann ávinning sem í því felst þeim til handa. Það viðhorf að íslenskir unglingar eru sjálfstæðari en jafnaldrar þeirra á ná- grannalöndunum er vel þekkt í daglegri umræðu. Lágur sjálfræðisaldur hingað til auk almennrar þátttöku unglinga á vinnumarkaði hefur eflaust átt mikinn þátt í að ýta undir sjálfstæði íslenskra ungmenna. Þegar rannsókn þessi fór fram fengu unglingar sjálfræði við upphaf framhaldsskóla eða sextán ára. Mörgum unglingum finrist eflaust mikilvægt að halda í nýfengið sjálfstæði og telja að sjálfræði þýði að foreldrum þeirra komi ekki lengur við hvað þeir aðhafast, hvorki í skólanum né annars staðar. Niðurstöður rannsóknarinnar endurspegla þetta viðhorf ungling- anna að nokkru leyti þar sem þeir hafa ekki áhuga á því að foreldrar þeirra verði sýnilegir í skólastarfinu. Sjálfstæði nemenda kemur ef til vill líka fram í því að rúmlega helmingur nemenda segist sjaldan eða aldrei fá aðstoð við heimanám sem er athyglisvert í ljósi mikils brottfalls í framhaldsskólum (Gerður G. Óskarsdóttir 1993:55, Jón Torfi Jónasson og Guðbjörg A. Jónsdóttir 1992:59). Fróðlegt væri að skoða eftir nokkur ár hvort hærri sjálfræðisaldur hefur einhver áhrif á viðhorf nem- enda til samstarfs. Hér á landi hefur verið takmörkuð umræða um gildi foreldrasamstarfs við fram- haldsskóla og unglingar því sennilega hvorki meðvitaðir um áhrif þess né í hverju það felst. Það gæti skýrt andstæður í svörum nemenda þegar spurt er almennt um samstarf og síðan þegar spurt er um afmarkaða þætti þess. Meirihluti nemenda telur óþarft að auka samstarf en finnst upplýsingamiðlun mikilvæg og vill auka hana. Bendir það til þess að nemendur líta ekki á upplýsingamiðlun sem hluta af samstarfi heimila og skóla. Líklegt er að þeir álíti samstarf heimila og skóla felast í þáttum eins og heimsóknum foreldra í skóla eða þátttöku í félagslífi þeirra, en slíkt samstarf þekkja flestir nemendur úr grunnskóla. í framhaldsskóla er ekki þörf á slíku samstarfi, þörfin snýr meira að upplýsingamiðlun og persónulegum sam- skiptum. Af þessum niðurstöðum má draga þá ályktun að mikilvægt sé fyrir skóla, sem ætla að taka upp samstarf við heimili nemenda eða efla það, að kynna fyrir nemendum í hverju samstarf felst og hvaða ávinnings má vænta af því. Með slíkri fræðslu má koma í veg fyrir misskilning og neikvæðni nemenda gagnvart sam- starfi. Meirihluti foreldra hefur jákvæð viðhorf til samstarfs, telur að það skili sér í árangursríkara skólastarfi og því sé mikilvægt að auka það. Stór hópur foreldra vill að samstarf sé mikið öll árin. Foreldrar vilja einkum samstarf um þætti er tengjast náminu beint en hafa minni áhuga á að skipta sér af stjórnun eða innri málefnum skólans. Foreldrar telja að ýmis upplýsingamiðlun henti best í samstarfi og hafa takmarkaðan áhuga á að starfa í foreldrafélögum. Menntun foreldra virðist hafa áhrif á viðhorf þeirra til samstarfs. Foreldrar með meiri menntun virðast hafa já- kvæðari viðhorf til samstarfs en foreldrar með minni menntun. Niðurstöðurnar sýndu líka að töluverður hópur foreldra fylgist með heimanámi og verkefnaskilum barna sinna. Meira er fylgst með yngri nemendum en þeim sem eldri eru en enginn munur er á aðhaldi foreldra eftir kynferði nemenda. Gildi þess að foreldrar fylgist 33
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.