Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Side 44

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Side 44
INNTAK SOGUKENNSLU einungis vegna stærðarinnar á drögunum í bókarformi (663 blaðsíður með kennslu- dæmum og útlistunum) heldur var þetta í fyrsta sinn sem leiðbeiningar af þessu tagi voru gefnar út fyrir öll fylki Bandaríkjanna. Hér var um að ræða uppskrift að sjö námsgreinum sem kenndar voru um allt hið mikla land. Aðdragandinn var sá að blásið hafði verið til átaks í menntamálum í tíð George Bush forseta þar sem stefnt var að því að veita bandarískum börnum menntun „á heimsmælikvarða" (Diegmueller og Viadero 1995): Hjá þjóð, sem jafnan hefur sett það á vald heimamanna á hverjum stað hvað kennt er í skólum, var öll viðmiðasetningin tákn um róttæka stefmibreytingu. Hún gat haft það í fór með sér að barn í fátæklegustu þorpum Alaska fengi hugsanlega að læra það sama og barn í auðmannahverfum Connecticut. 1 kjölfar þessa var m.a. tekið til við að semja námskrá í sögu og hafði sú vinna heimasveit sína í Kaliforníuháskóla í Los Angeles en fjármagnið til verksins kom frá menntamálaráðuneyti alríkisstjórnarinnar og opinberum hugvísindasjóði á lands- vísu, „National Endowment for the Humanities" (NEH). Að verkinu kom fjöldi fólks, háskólasagnfræðingar, kennarar, fulltrúar áhugafélaga, minnihlutahópa og fylkisstjórna, alls um 200 manns. Svo þegar drög að landsnámskrá í sögu kom út fór allt í bál og brand og landið logaði í illdeilum. Tónninn í gagnrýninni var gefinn í grein í Wall Street Journal 26. október 1994, nokkrum dögum áður en námskráin kom út á prenti. Lynn Cheney hét höfundurinn og greinin nefndist „Endalok sögunnar". Ekki bætti úr skák að höfundurinn hafði verið forstöðumaður þess sama sjóðs, NEH, sem mest styrkti verkefnið. Hvað olli reiði Cheney og hinna gagnrýnendanna, þar á meðal öldungadeildar Bandaríkja- þings sem felldi með 99 atkvæðum gegn einu að setja námskrána í gildi? (Cheney 1994): ímyndið ykkur drög að sögu Bandaríkjanna þar sem George Washington rétt bregður fyrir og er aldrei lýst sem fyrsta forseta okkar..,19 sinnum er minnst á McCarthy og McCarthyisma. Ku Klux Klanfær einnig sinn skammt, 17 sinnum. Hvað einstaklinga snertir er Harriet Tubman nefnd sex sinnum en hún var Afríku-Ameríkumaður sem hjálpaði þrælum að flýja um jarðgöng. Tveir hvítir karlmenn, sem voru uppi samtíma Tubman, Ulysses S. Grant og Robert E. Lee, eru hvor um sig nefiidir einu sinni (sáfyrri) eða aldrei (sá seinni). Alexander Graham Bell, Thomas Edison, Albert Einstein, Jonas Salk og Wright-bræður birtast alls ekki. Hér er ljóst hvað veldur ágreiningi. Það eru mismunandi skoðanir á inntaki sem varðar þjóðarímyndina. Annars vegar sú sýn að bandarískt samfélag sé sprottið af evrópskum rótum og hafi síðan mótast af atburðum, stofnunum og forystumönn- um í sjálfstæðisbaráttu hvítra nýlendubúa, landnámi og borgarastríði. Hins vegar er það viðhorf að samfélagið sé fjölmenningarþjóðfélag sem reki einnig ættir til Afríku og (í vaxandi mæli) Asíu auk áhrifa frá frumbyggjum Ameríku. Þetta sjónarmið speglast í heiti fyrsta tímabilsins í námskránni yfir sögu Bandaríkjanna: „Þrír heimar mætast." Þessi ólíku sjónarmið eru ekki ný. Þó að opinber söguskoðun hafi verið sú að bandarískt þjóðfélag væri eitt og það væri reist á vestrænum hugmyndagrunni 42
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.