Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 51

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 51
ÞORSTEINN HELGASON „barnið í nútímaþjóðfélaginu", sem ekki getur stuðst við hefðir í sama mæli og áður, en býr við áhrif frá markaðsöflum, fjölmiðlum og öðrum ópersónulegum mótunaröflum. Þetta barn getur búið næstum hvar sem er, a.m.k. í vestrænum heimi. Sögulegt efni er einkum valið út frá þroskasálfræðilegum og kennslufræði- legum sjónarmiðum, að viðbættum þeim efnisrökum sem talin eru til um land- námsöldina. Að landnáminu liggur þó ekki bein braut í sögunámi skólanemenda heldur skal höfð viðkoma á nokkrum stöðum: 1) hjá börnum sem hafa alist upp hjá dýrúm, 2) hjá japanskri fjölskyldu, 3) hjá frummanninum, 4) hjá frumstæðu fólki nú á dögum og 5) í samfélagi apa - og þaðan til landnámsmanna á íslandi. Þessir efnisþættir (inntak) eru ekki fyrst og fremst valdir vegna þess að þeir séu áhuga- verðir í sjálfu sér eða tengist íslenskum menningarheimi heldur eiga þeir að vera áfangar á leið barnsins til skilnings á gagnvirkum áhrifum manns og umhverfis og þörf hans fyrir reglu og samfélag. í námsefni þriðja námsárs var í ámóta tilgangi gert ráð fyrir að fjallað yrði um Tansani og eskimóa (ínúíta) vegna þess að þannig „gefst nemendum tækifæri til samanburðar" (Samfélagsfræði 1977:46): Á þriðja námsári eru samskipti manns og umhverfis meginviðfangsefnið. Valin eru dæmi umframandi samfélög þar sem ætla má að nemendur geti skoðað þessi sam- skipti opnari augum í umhverfi sem er þeim mjög framandi. Samanburður er auð- veldari þegar gefin eru dæmi um skyld en ólík fyrirbæri. Auk þess er framandi efni vænlegt til að vekja forvitni og áhuga nemenda. Varðandi „eskimóa" eru rökin fyrst og fremst kennslufræðileg, félagsleg og mann- fræðileg. Þó er vikið að öðrum ástæðum sem kalla mætti menningarleg eða kannski frekar landfræðileg: Viðfangsefni um líf eskimóa áður fyrr eru valin vegna þess að þeir eru nágrannar okkar á norðurhveli jarðar og umhverfi þeirra er sérstætt. Satnfélag þeirra var til- tölulega einfalt að gerð en sýnir í óvenju skýrri mynd aðlögunarhæfni manna og hugvit í samskiptum við harðneskjulegt umhverfi. Sú gjörbreyting sem orðið hefur á lifiíaðarháttum eskimóa gefur gott tilefni til að ræða um þjóðfélagsbreytingar sem er eitt af lykilhugtökum samfélagsfræðinnar. Þessa nálgun námskrárinnar í samfélagsfræði má gagnrýna frá þrem sjónarhornum. í fyrsta lagi gefur hún til kynna ákveðna þróunarhyggju þar sem gert er ráð fyrir braut sem liggi frá einföldum samfélögum frumstæðra þjóða og eskimóa til ís- lenskra landnámsmanna (og áfram). I öðru lagi er landkostum og loftslagi gert hátt undir höfði með því að leggja mikla áherslu á „líf í heitu og köldu landi", sömu- leiðis með því að velja markalínur samfélags á íslandi eftir umhverfisþáttum (ann- að námsár). í þriðja lagi koma menningarlegar og sögulegar forsendur ekki mikið við sögu þegar inntak er valið. Sem dæmi um það má nefna að hvergi eru Norður- lönd nefnd á nafn sem umfjöllunarefni í grunnskóla og má þó auðveldlega færa rök fyrir því að þau standi íslendingum næst þegar litið er út fyrir landsteina. Ef inn- takið er hins vegar valið út frá altækum félagslegum „lykilhugtökum" og „megin- hugmyndum" má jafnauðveldlega sýna fram á að norrænt land sé nemendum of nákomið og þau læri meira af „umhverfi sem er þeim mjög framandi". Um þetta atriði verður fjallað sérstaklega í lok greinarinnar. Samfélagsfræðitilraunin á sér merkilega sögu sem ekki verður rakin hér (Arnór 49
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.