Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 61

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 61
ÞORSTEINN HELGASON og manngildi fengu til að mynda ákveðið form í frönsku byltingunni en þær eiga sér margbrotinn aðdraganda og sá skilningur sem við leggjum í þær er líklega skyldastur því sem tíðkast í norrænum grannlöndum - vegna sögulegra tengsla og stöðugra samskipta í aldanna rás. „Norðurlönd eru óspennandi." Það er á margan hátt skiljanlegt að málefni „inn- an (norrænu) fjölskyldunnar" séu ekki eins æsileg og það sem gerist hinum megin við lækinn. Þetta er raunar ekki aðeins viðhorf barna. Fræðimenn hafa einnig verið fælnir við þetta efni (Nissen 1997:7): Því er ekki að neita að annað hefur verið sagnfræðingum landanna og bókelskum almenningi ofar í huga. Ókunnugleikinn um sögu grannlandanna er áberandi. Að einhverju leyti kann petta að stafa afþví hve lík hún er. Ekkert er æsilegt við að lesa um stjórnmála- og menningarpróun nágrannaþjóða pegar menn búast við að hún sé eins og heima - bara á erfiðara tungumáli. Gestur Guðmundsson hefur rökstutt þörfina á því að fræðimenn fáist við þetta nærtæka efni - með því að halda fjölskyldulíkingunni áfram (Gestur Guðmundsson 1998:255): Norðurlandasaga er kjörinn vettvangur fræðimanna til að breyta veruhættinum9 á traustan hátt, rétt eins og barn víkkar sjóndeildarhring sinn smám saman frá mömmu, pabba og systkinum og til stórfjölskyldu og nágranna. Síðasta röksemdin, sem hér var talin til, um að dönsku- og landafræðikennsla full- nægði fræðsluþörfinni um Norðurlönd, hefur nokkuð til síns máls. Að danska (eða sænska og norska) skuli vera skyldunámsgrein í íslenskum skólum tryggir auðvitað að þessum tengslum sé sinnt. En haldbær rök skortir fyrir því að þessum efnisþætti sé ekki einnig gaumur gefinn í sögukennslu þar sem öll heimsbyggðin er á dagskrá. Hér hefur einn inntaksþáttur sögunnar verið tekinn til sérstakrar athugunar til að prófa hvort hægt er að rökstyðja hami með haldbærum hætti. Niðurstaðan er sú að söguleg, menningarleg og kennslufræðileg rök ásamt hagnýtissjónarmiðum renni stoðum undir þá skoðun að hinn norræni þáttur skuli eiga nokkurn sess þar sem saga er kennd á íslandi. Fleiri efnisþætti sögunnar mætti skoða með sama hætti. Evrópsk vídd Evrópa er frek á athyglina um þessar mundir og settar eru fram óskir og viðmið um „evrópska vídd" í sögukennslu. Nú má slíkt þykja undarlegt þar sem gagnrýni hefur lengi heyrst um að mannkynssagan, sem kennd er í skólum, sé of Evrópu- miðuð. Óskin um Evrópuvíddina er af sama toga og hugsjón Evrópusamstarfs eftir stríð. Hún snýst um að reyna að læra af sögunni. Evrópuríki hafi háð skæðar styrjaldir sín á milli í aldaraðir og hleypt heimsbyggðinni í bál á þessari öld. Því sé brýnt að tengja löndin saman, leggja áherslu á sameiginlegan arf en draga úr þjóð- ernisáhrifum. í beinhörðum inntaksþáttum sögunnar hefur þetta komið fram í 9 Veruháttur = habitus, meira eða minna ósjálfráð viðbrögð við umhverfinu (hugtakanotkun Pierre Bourdieu). 59
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.