Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Síða 77

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Síða 77
KRISTÍN UNNSTEINSDÓTTIR mörgu stigum gullgerðarferlisins. í gullgerðarlistinni er eldurinn primus motor og slokkni hann er allt glatað. Jung leit á gullgerðarlistina sem ferli innri sálfræðilegrar þróunar í gullgerðarmanninum sjálfum og efnabreytingarnar og efnahvörfin sem breytingar á persónuleika hans (Storr 1973:92). Oftast stendur eldurinn fyrir tilfinningar og ástríður sem geta annaðhvort brunnið til ösku eða varpað ljósi. í öllum töfrum slegnum og trúarlegum helgiathöfnum er eldurinn gæddur heilögum eiginleikum sem búa yfir krafti til breytinga (von Franz 1989:100, 179). Án tilfinningahita verður hvorki þróun né nær manneskjan hærra vitundarstigi. Þetta er engin ný kenning eða staðhæfing heldur hefur þessi vitneskja fylgt manninum lengi. Þess sér víða stað, þannig segir til dæmis í Opinberunarbók Jóhannesar 3,16 (Nýja testamentið og Sálmarnir 1994:437): En afþví að þú ert hálfvolgur og hvorki heitur né kaldur, mun ég skyrpa þér út af munni mínum. I eldinum sameinast ljós og hiti og þessir þættir geta táknrænt staðið fyrir visku og kærleika. I einu af indversku launhelgiritunum, Brihadaranyaka-Upanishad, segir að maðurinn þurfi bæði á ytra og innra ljósi að halda (Launvizka Vedabóka. Uphanis- hadur 1977:102); „En þegar sólin er sezt, máninn er genginn undir, eldurinn slokknaður og ekkert hljóð heyrist, hvað er þá Ijós mannsins?" „Þá er sjálfið Ijós hans,... ogíIjósi sjálfsins vinnur maður oghvílist,fer og kemur." „Hvað er sjálfið?" „Það er lífsvitundin umvafin skynjunum; hún er Ijós í hjarta." Áður en Helga nær endanlega valdi á eldinum þarf hún að ganga í gegnum þrjár prófraunir sem eru undirstrikaðar með hamskiptum. Raunar má segja að áður en að hamskiptunum kemur þreytir Helga sína fyrstu prófraun sem felst í því að hleypa í sig kjarki og leggja af stað til risanna í leit að eldi. Gullintanna töltir í hælinn sem kannski gerir útslagið. Helga þreytir því alls fjórar prófraunir og kemur það vel heim og saman við þá skoðun von Franz að þrátt fyrir allt tal um þrítöluna í ævintýrum sé fjórtalan nær lagi. Fyrst séu tekin þrjú skref og síðan eitt í viðbót sem feli í sér lausnina (von Franz 1989:86-87). J. C. Cooper bendir á að þrítalan standi fyrir virka sköpun, sem birtist til dæmis í fæðingu, lífi og dauða eða fortíð, nútíð og framtíð, en fjórtalan tákni aftur á móti stöðugleika sem komi fram í árstíðunum fjórum, fjórum heimshornum eða fjórum örmum krossins (Cooper 1993:223-224). Umbreyting Helgu - gimbur, trafakefli og stjarna Eins og fram hefur komið liggur leið mannsins til þroska gegnum einsömunarferlið að mati Jungs. Leið Helgu karlsdóttur til einsömunar liggur eins og allra annarra gegnum umbreytingu. í ævintýrinu birtist umbreyting hennar táknrænt sem gimbur, trafakefli og stjama. Þegar þær Helga og Gullintanna eru komnar heim með glóðina úr helli risanna og það er farið að rjúka og loga glatt í kotinu geltir Gullintanna úti á hlaðinu og gefur þá skýringu að gýgur sé kominn' að garði. Þá segir Helga: 1 Samkvæmt íslenskri orðabók (Árni Böðvarsson 1976:210) merkir orðið gýgur tröllkona og er kvenkynsorð, en í þessu ævintýri er bersýnilega átt við risa eða tröllkarl. í ævintýrinu notar skrásetjari orðið í karlkyni. 75
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.