Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 106

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 106
STARFSNÁM í FRAMHALDSSKÓLANUM skiptatengdar greinar eru nú á háskólastigi en voru áður (á sérskólastiginu), ætluðu aldurshópnum 17-20 ára. Fjöldi starfstengdra kennslugreina, einkum í raungrein- um, hefur bætzt í háskólaflóruna eftir 1970. Aldur þeirra sem hefja nám í löggiltum iðngreinum hefur hækkað verulega og er meirihluti nýnema yfir tvítugu. Meiri kröfur um undirstöðumenntun í faggreinum og áherzlubreyting í sjálfu náminu frá verklagni til þekkingar á „tæknifræði" greinar ræður hér miklu. Stúdentshúfusóknin mikla Kannanir á viðhorfi framhaldsskólanema sjálfra til náms benda til yfirgnæfandi áhuga á bóknámsbrautum sem leiða til stúdentsprófs. Kannanir sýna (sjá Sigríði Bílddal 1993) að langflestir þeirra sem gætu hugsað sér verknám telja mikilvægt að ljúka stúdentsprófi. Margir þeirra sem velja bóknámsbrautir fara síðan í iðnnám. Jón Torfi Jónasson (1995-1997) nefnir að óvissa um framtíðina í formi breyttra við- horfa til fasts ævilangs starfs, sem margir telja brátt heyra fortíðinni til, kalli á mun betri undirstöðu í grunnmenntun, þannig að menn geti betur lagað sig að mörgum ólíkum vinnuferlum í framtíðinni. Breytt viðhorf almennings til grunnmenntunar Viðhorf ungs fólks jafnt sem almennings í landinu er að sem flestir taki bóklegar brautir allt til stúdentsprófs sem alhliða grunnmenntun áður en valið kemur að sér- hæfðu starfsnámi. UNDIRBÚNINGUR GRUNNSKÓLA OG BREYTT HLUTVERK FRAMHALDSSKÓLANS Skólum á grunn- og framhaldsskólastigi er ætlað býsna stórt hlutverk. Fram kemur í lögum um grunn- og framhaldsskóla að tilgangur með skólagöngu barna og ung- menna er mjög rúmt orðaður og því á vissan hátt loðinn, eins og kemur fram í tilvitnun í framhaldsskólalögin hér á undan. Þótt ekki gefist hér ráðrúm til að fjalla um hina miklu byltingu í uppeldi frá kyrralífi bændamenningar í faðmi fjölskyld- unnar til uppeldisskorts barna í hraða þéttbýlismyndunar, tæknibyltingar og síðan upplýsingabyltingar, verður ekki undan því vikizt að fjalla um hvernig þessi tvö skólastig standa að vígi til þess að rækja hlutverk sitt. Þau eru mjög samtengd því að seinna stigið byggir á þeirri þekkingu og þroska sem fyrra skólastigið hefur veitt þiggjendum sínum. Segja má, að meginhlutverk skólans séu tvö (Wolfgang Edelstein 1988). í fyrsta lagi að kenna nemendum siðina, það er að gera þá hæfa til mannlegra samskipta og umgengni við annað fólk, læra að stjórna sjálfum sér og glíma við ýmis verkefni, andleg og líkamleg. í þessu felst einnig að taka við ýmsum siðaboðskap, hefðum og reglum sem fyrri kynslóðir hafa mótað og þjóðfélagið ætlar skólanum að annast flutning á til nýrrar kynslóðar. í öðru lagi er hlutverk skólans að færa nemendum sínum tilskilda þekkingu á sem flestum sviðum eftir því sem námskrár og skóla- málayfirvöld telja henta í samræmi við vilja samfélagsins. Skólastigin tvö eiga fullt í fangi með að standa undir þessu tvíþætta hlutverki sínu. Fyrra hlutverkið, inn- 104
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.