Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Side 116

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Side 116
UMHYGGJA OG AGI FARA SAMAN kennaranema hef ég auðvitað áhyggjur af því hvernig ég geti sem best búið nemendur mína undir starfið og því hvort ég geti gert eitthvað til að létta þeim lífið við kennslu og stjórnun bekkjar. Það geri ég auðvitað með því að kenna nemend- unum öguð vinnubrögð og með því að sýna þokkalegt fordæmi í þeim efnum. En það er sennilega ekki nóg. Helst vildi ég breyta vinnufyrirkomulagi grunn- og framhaldsskóla, einkum með því að draga úr hópkennslu og fyrirlestrahaldi. En það er heldur ekki nóg auk þess sem áhugi minn á því að breyta vinnubrögðunum þar kemur nemendum mínum að takmörkuðu haldi í veruleika dagsins í dag. Bókin Leiðbeiningar um aga til umhyggjusamra kennara er því kærkomin. Hún er eftir Marilyn E. Gootman sem er prófessor í kennaramenntun við Georgíuháskóla. Hún hefur starfað sem grunnskólakennari og ráðgjafi kennara og haldið fjölda námskeiða um margvísleg efni, svo sem um áföll og agastjórnun. Þessi bók fjallar einmitt um haldgóð ráð sem kennarar geta notað til að bregðast við þeim atburðum sem óhjákvæmilega verða í skólastarfi og stundum teljast óhlýðni og agabrot en eru oftar réttmæt og eðlileg uppþot barna og unglinga yfir smámunum sem gætu alveg sett fullorðna manneskju úr jafnvægi. Gootman byrjar bókina á því að benda á að flestir stunda kennslu vegna áhuga á börnum og unglingum og hún skrifar bókina fyrir slíka kennara. Hún fjallar um hugtakið agi hins umhyggjusama kennara sem felst í að kenna börnum að breyta rétt. Umhyggjusamur kennari setur mörk, veitir nemendum möguleika á að bera ábyrgð, leitast við að efla sjálfstraust nemenda og hjálpar þeim við að leysa úr vanda sem upp kemur, bæði um námið og samskipti. Umhyggjusamur kennari kennir nemendum sínum því að fara rétt að. Forsendur Gootman eru einkum þrjár: að kennarar séu hæfileikaríkar manneskjur sem nota kollinn, að börn séu ekki fædd slæm og að kennarar geti gert gæfumun í lífi þeirra barna sem búa við skort af einhverju tagi heima hjá sér. Gootman segir að með því að refsa sé nemendum í besta falli kennt að gera ekki það sem er rangt. Hún heldur því fram að vinsæl agastjórnunarkerfi, sem hafa náð verulegri útbreiðslu í Bandaríkjunum og mun verða reynt að setja á markað hérlendis, virki illa því að nemendur finni stöðugt nýjar leiðir til að trufla, ef þeir kæri sig um. Þessi kerfi byggjast gjarna á því að skilgreina „afleiðingar" (eiginlega hálfgert feluorð fyrir refsingu) sem tiltekin brot hafi undantekningarlaust í för með sér, í stað þess að þau séu metin hverju sinni. Gootman staðhæfir að engar einfaldar lausnir séu til í þessu efni og að kennarar verði einfaldlega að sætta sig við að aga- stjórnun taki bæði tíma og á taugar. Þar af leiðandi ver hún fyrstu köflum bókar- innar í að ræða skynsamlegar aðferðir við að setja reglur og viðmið. Hún leggur langmesta áherslu á að kennarar þrói skynsamlegt og skilvirkt vinnulag, til dæmis við frágang gagna, skiptingu milli viðfangsefna í kennslustund og gjöf fyrirmæla, en einnig að reglur um matarhlé, söfnun mjólkurmiða og þvíumlíkt séu skýrar. Þannig leggur Gootman áherslu á þær reglur sem snerta námið sjálft en einnig á festu í þáttum er snerta grundvallarþarfir okkar. Næstu kaflar bókarinnar fjalla um sjálfstraust, hrós og verðlaun, samskipti og hvernig á að fást við það þegar reiði brýst út. Hún fjallar m.a. um ólíkar gerðir svq- 114
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.