Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Síða 118

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Síða 118
UMHYGGJA O G AGI FARA SAMAN ræðna um sanngjörn viðbrögð og viðurlög. Vissulega gætu töflur um viðbrögð við óþægð orðið að kerfi sem allir ættu að fylgja - en ég held að slíkar töflur muni ekki leiða til vélrænna, ómanneskjulegra refsinga. Gootman bendir á leiðir til þess að fást við reiði nemenda. Ef nemandi kemur reiður í kennslustund, til dæmis úr frímínútuny og er ekki fús til þess að slaka á, hvað á þá kennari að gera? Kennari þarf að viðurkenna að nemandi sé reiður: „Svo að þér líður illa", fremur en að segja „Þú ert ekki reið/ur". Kennari þarf líka að forðast að ásaka nemanda með því að segja honum að reiði sé óskynsamleg og umfram allt þarf kennari að halda eigin ró. Oft dugar þetta en svo bendir Gootman á leiðir til þess að fá nemandann til að segja meira frá reiðinni. Gootman leggur mikið upp úr því að kennarar kynni sér ástæður þess að nemandi sé reiður eða hegði sér illa. Hún helgar síðari hluta þeirra kafla sem fjalla um reiði og óþægð heppilegum leiðum til að kynna sér ástæður fyrir reiði og óþægð nemenda og ræðir algengar ástæður slíkrar hegðunar. Ég vil ekki gera lítið úr því að undir tímaálagi í nútímaskóla finnist kennurum þeir hafi of lítinn tíma til að sinna slíkum rannsóknum. Því enda þótt margar af ástæðum reiði og óþægðar liggi utan skólans, þá liggja sumar orsakir í skólanum, í námsefninu, í aðferðum eða viðmóti kennara - í stuttu máli sagt í einhverju sem kennari getur breytt. Og ef kennarar barnsins geta ekki breytt aðstæðum til batnaðar, þá verða þeir að hafa einhverja hugmynd um hvert á að leita. Rannsókn af þessu tagi er vissulega auð- veldari fyrir bekkjarkennara en fagkennara í unglingadeild safnskóla sem kennir fáar stundir á viku og enginn í skólanum þekkir nemandann og sögu hans. Ekki má skilja orð mín svo að safnskólar séu slæmir vegna þessa, heldur fremur að við þær aðstæður er samvinna kennara afar nauðsynleg til að vinna gegn ókostum fyrir- komulagsins. Og mun duga til þess. Meðal þess sem Gootman mælir gegn er sjálfvirkt hrós í stjörnuformi. Hún bendir á að nemendur geti verið fljótir að safna svo mörgum stjörnum að ekki sé eftir neinu að sækjast lengur. En þetta er líka vegna þess að stjörnur eru ekki neitt tengdar eðli námsefnisins. Og almennt mælir Gootman með því að agastjórnun sé sem best tengd námsefninu. í því skyni er vert að benda á að í Aðalnámskrá grunn- skóla frá 1989 er mjög mikið af markmiðum er snerta samskipti og samskiptahæfi nemenda og verða vonandi í nýrri aðalnámskrá. Lokakaflinn, um hvernig kennari getur unnið í málum nemenda sem eiga í erfiðleikum heima fyrir eða hafa orðið fyrir áfalli, er mjög gagnlegur. Gootman kennir lesandanum að þekkja einkenni alvarlegra áfalla og greina þau frá annars konar hegðun, sem veldur truflun, og leggur til viðbrögð sem geta verið blanda af því að leita aðstoðar og þess að barnið geti haldið áfram í bekknum á sömu forsend- um og önnur börn. Bók Gootmans segir reyndum kennurum sennilega ekki margt sem þeir ekki vissu en þó kann að vera að mörgum finnist gott að lesa suma kaflana til að átta sig á því að þeirra reynsluviska er reynsluviska margra annarra. Mér sýnist bókin vera byggð á sígildum hugmyndum um agastjórnun í bland við rannsóknarniðurstöður og nútímalegar hugmyndir ættaðar úr sál- og meðferðarfræðum en heilsusamlega á skjön við þá tilhneigingu að negla agastjórnun niður í kerfi þar sem ekki er tekið 116
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.