Tímarit lögfræðinga - 01.12.1983, Page 45
Nefndin vekur athygli á því að þessar aðgerðir áttu sér stað í sam-
ræmi við tiltekin ákvæði í lögum nr. 59/1976 um fjölbýlishús og þar af
leiðandi er lagaskilyrðunum fullnægt.
Hér að framan hefir verið lýst markmiðinu með þessum ákvæðum.
Af því má ljóst vera, að með lögum þessum er ætlað að hafa eftirlit
með því, hvernig eignir eru nýttar og til þess að koma á almennum
reglum um sambýlisháttu og umgengnisvenjur til hagsbóta fyrir Is-
lendinga. Þess vegna eru aðgerðir dómstólanna í þessu máli réttlætan-
legar skv. 2. mgr. 1. gr. I. Viðbótarsamningsins, enda í samræmi við
almannahag.
Þar af leiðandi ályktar nefndin, að kæra þessi, byggð á 1. gr. I. Við-
bótarsamningsins, hafi ekki við rök að styðjast (manifesty illfounded)
í skilningi 2. mgr. 27. gr. Sáttmálans.
Af þessum ástæðum lýsir nefndin yfir því, að kæra þessi sé ótæk til
efnismeðferðar.“
Lýkur hér með frásögn af þeim kærumálum gegn Islandi, er Mann-
réttindanefnd Evrópu hefir fjallað um.
Reykjavík, 2. júní 1984.
247