Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1983, Side 68

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1983, Side 68
Mannréttindadómstóllinn var ekki bær til að fjalla um þýðingu laga- breytinga, sem gerðar voru 1981, eftir að þeir atburðir urðu, sem málið spratt af. Dómstóllinn lýsti þó ánægju með lagabreytingar, sem miðuðu að því að skuldbindingar Bretlands eftir mannréttindasáttmál- anum væru virtar. II. 6. gr. 1. mgr. mannréttindasáttmálans. Neitað hafði verið um leyfi til að leita bréflega lögfræðiaðstoðar vegna meintrar vanrækslu í fangavörslu. Mannréttindadómstólnum bar að úrskurða um kæruna, þó að lögum og starfsreglum hefði nýlega verið breytt. Byggt var á dómi 21. febrúar 1975 í málinu Golder gegn Bretlandi. Niðurstaða: Brot. III. 8. gr. mannréttindasáttmálans. Þessi grein fjallar um friðhelgi einkalífs, fjölskyldu, heimilis og bréfaskipta. Sjö kærendur héldu því fram, að greinin hefði verið brot- in þar sem 64 bréf hefðu ýmist verið stöðvuð eða látin liggja um skeið hjá fangelsisyfirvöldum. Mannréttindanefndin hafði komist að þeirri niðui'stöðu, að kærurnar væru í flestum atriðum á rökum reistar, og var þessu ekki andmælt fyrir dómstólnum af hálfu ríkisstjórnar Bret- lands. 1. Var röskunin „samkvæmt lögum“? I 8. gr. 2. mgr. segir, að röskun þeirra réttinda, sem 8. gr. 1. mgr nefnir, sé í vissum tilvikum heimil. M.a. þarf það að gerast „samkvæmt lögum“. a) Almennt gildir, að röskunin þarf að byggjast á lögum þess ríkis, er í hlut á, lögin þurfa að vera nægilega aðgengileg og afleiðingar gerða þurfa að vera fyrirsjáanlegar í sanngjörnum mæli. Þégar meta á, hvort afleiðingar séu þannig fyrirsjáanlegar, má taka tillit til starfs- reglna frá ráðherra, þótt þær jafngildi ekki lögum, ef þeir, sem þær snerta, fá nægilegar upplýsingar um þær. Það er þess vegna ekki nauðsynlegt, að skilyrði og starfsaðferðir varðandi afskipti af bréfum séu í almennum lögum. Nauðsynlegt er, að ákvæði séu um ráðstaf- anir gegn misnotkun starfsreglna, einkum ef þær hafa að geyma víð- tækar matsheimildir, en um slíkar ráðstafanir þarf ekki að vera mælt í texta þeim sem leyfir röskun. b) Mannréttindadómstóllinn kannaði þær gerðir fangelsisyfirvalda, sem kærðar voru, á grundvelli ofangreindra meginreglna og atvika málsins. 270

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.