Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Side 16
Margföldunarstuðullinn
6. grein laganna er svo-
hljóðandi:
Bætur skal meta til fjár-
hæðar sem nemur 7,5-föld-
um árslaunum tjónþola, sbr.
7. gr., margfölduðum með
örorkustigi, sbr. 3. mgr. 5. gr.
Bótafjárhæðin skal greidd
í einu lagi.
6. grein laganna orðist svo:
Bætur fyrir varanlega örorku skal meta til fjárhæða
á grundvelli örorkustigs tjónþola samkvæmt 5. gr.,
árslauna hans samkvæmt 7. gr. og neðangreindri töflu
þannig, að margfaldað sé saman örorkustig, árslaun og
stuðull töflunnar í samræmi við aldur tjónþola á þeim
tíma, þegar honum er metin varanleg örorka.
Aldur Stuðull Aldur Stuðull Aldur Stuðull
0 7,971 28 12,135 56 6,177
1 8,330 29 11,894 57 5,898
2 8,705 30 11,302 58 5,614
3 9,096 31 11,120 59 5,325
4 9,506 32 10,933 60 5,032
5 9,933 33 10,744 61 4,736
6 10,380 34 10,551 62 4,460
7 10,848 35 10,355 63 4,203
8 11,336 36 10,155 64 3,943
9 11,846 37 9,951 65 3,684
10 12,379 38 9,796 66 3,396
11 12,936 39 9,636 67 3,120
12 13,518 40 9,470 68 2,872
13 14,126 41 9,298 69 2,637
14 14,762 42 9,071 70 2,415
15 15,426 43 8,889 71 2,206
16 16,121 44 8,654 72 2,007
17 16,846 45 8,414 73 1,816
18 16,357 46 8,215 74 1,635
19 15,870 47 8,010 75 1,457
20 15,382 48 7,756 76 1,280
21 14,895 49 7,499 77 1,107
22 14,410 50 7,278 78 0,925
23 13,927 51 7,129 79 0,726
24 13,445 52 6,930 80 0,604
25 13,088 53 6,760 81 0,492
26 12,730 54 6,612 82 0,390
27 12,372 55 6,416 83 0,334
eldri 0,000
Bótafjárhæðin skal greidd í einu lagi.
Þungamiðja gagnrýninnar á skaðabótalögin frá 1993 hefur verið á þessa
grein. Því hefur verið haldið fram, að stuðullinn 7,5 mæli tjónþolum ekki fullar
bætur fyrir fjártjón eins og að hafi verið stefnt við lagasetninguna. Um þetta
atriði vísast til fyrri greinar okkar um álitsgerð okkar frá árinu 1994. Þar
240