Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Page 36

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Page 36
5.1 Þjáningatímabil (Þ) sama og óvinnufærnitímabil (Ó) (Þ=Ó) 5.2 Þjáningatímabil (Þ) lengra en óvinnufæmitímabil (Ó) (Þ>0) 5.3 Þjáningatímabil (Þ) styttra en óvinnufæmitímabil (Ó) (Þ<Ó) 5.4 Þjáningatímabil er mjög stutt eða ekkert 6. VERKEFNI MATSLÆKNIS 7. SAMANTEKT 1. INNGANGUR Lög um skaðabætur fyrir líkamstjón tóku gildi 1. júlí 1993.1 Þau era sniðin eftir dönsku skaðabótalögunum, „Erstatningsansvarsloven",2 sem hafa verið í gildi frá 1984.3 í lögunum er m.a. að finna nýja afstöðu til ákvörðunar tímabundinna bóta þar sem gerður er skýr greinarmunur á fjárhagslegum þætti sem atvinnutjóni og ófjárhagslegum þætti sem þjáningum. Fram til þessa hafa þjáningabætur ekki verið afmarkaðar með svo skýrum hætti. Önnur nýjung í lögunum er hvernig ákvarða skuli lok tímabundinna bótaþátta og þar með upphaf bóta vegna varanlegs tjóns. Það er gert með því m.a. að ákvarða hvenær heilbrigðisástand er orðið stöðugt (stationær) og ekki er að vænta frekari bata. Danir kalla þennan tímapunkt „stationærtidspunkt", en í íslenskum lögum og lagaskýringum vantar þetta hugtak. Þótt hugmyndin að baki þessari skil- greiningu virðist við fyrstu sýn augljós, hefur hún reynst æði óljós í daglegri notkun hér á landi og vakið upp fjölda spurninga. Þessari grein er ætlað að leita svara við nokkrum þessara spurninga, m. a. með aðstoð lagaskýringartexta við dönsku skaðabótalögin. Jafnframt verður rætt um hlutverk lækna í úrvinnslu skaðabóta fyrir lrkamstjón. 2. HUGTAKIÐ „STÖÐUGLEIKATÍMAPUNKTUR“ EÐA „EKKI AÐ VÆNTA FREKARI BATA“ í dönsku skaðabótalögunum í 2. gr. „Tabt arbejdsfortjeneste“, 3. gr. „Svie og smerte“, 4. gr. „Varigt mén“ og 5. gr. „Erhvervsevnetab“ er notað orða- sambandið „helbredstilstand er blevet stationær11.4 * * * * * * í dönskum lagaskýringar- textum er orðasambandið nánar útskýrt sem sá tímapunktur, „stationær- tidspunkt“, þegar ekki er að vænta frekari bata: 1 Skaðabótalög nr. 50/1993, sem tóku gildi 1. júlí 1993. 2 Lovbekendtgórelse nr. 599 af 8. september 1986 som ændret ved lov nr. 196 af 29. marts 1989 og lov nr. 389 af 7. juni 1989 om erstatningsansvar. 3 Kruse, Anders Vinding og Mpller, Jens: Erstatningsansvarsloven med kommentarer. Kaup- mannahöfn 1993, bls. 15. 4 í frumvarpi til skaðabótalaga „Forslag til Lov om erstatningsansvar", sem lagt var fyrir danska þingið 1984, kemur orðalagið „helbredstilstand (er) blevet stationær“ fyrir í öllum fjórum grein- unum nema 3. gr. Svie og smerte. Tillæg A til Folketingstidende. J. H. Schultz A/S, Kpbenhavn 1985, dálkar 47-48. Þingmannanefnd lagði síðar á þinginu til að fyrmefnt orðalag kæmi einnig í 3. gr. Folketingstidende 1983-84, 2. samling. Tillæg B, J.H. Schultz A/S, Kpbenhavn 1985, dálkur 482-3. Sjá nánar um það í kafla 3.2 Tvær merkingar hugtaksins „veikur". 260
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.