Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Side 64
Nú eru í gildi rúmlega 1400 tvísköttunarsamningar í heiminum öllum. í
byrjun árs 1969 voru taldir um 530 samningar í gildi þannig að ljóst er að net
tvísköttunarsamninga hefur þéttst stöðugt á undanfömum áratugum. Alþjóð-
legur skattaréttur á því vaxandi erindi til lögfræðinga.
Auk Norðurlandasamningsins eru í gildi eftirfarandi tvísköttunarsamningar2
sem ísland hefur gert við önnur lönd. Innan sviga er tilgreint hvenær við-
komandi samningur var undirritaður og hvar hann er birtur:
1) Þýskaland (18. mars 1971. Stj.tíð C, 13/1971)
2) Bandaríkin (7. maí 1975. Stj.tíð C, 22/1975)
3) Sviss (3. júní 1988. Stj.tíð C, 3/1989)
4) Frakkland (29. ágúst 1990. Stj.tíð C, 8/1992)
5) Bretland (30. september 1991. Stj. tíð C, 32/1991)
6) Eistland ( 16. júní 1994. Stj. tíð C, 4/1995)
7) Lettland ( 19. október 1994. Stj. tíð C, 5/1995)
8) Kína (3. júní 1996. Óbirtur)
Tvísköttunarsamningur við Kanada var undirritaður 19. júní og við Holland
25. september 1997. Samningsdrög hafa verið undirrituð við Litháen (janúar
1993), Lúxemborg (september 1996), Víetnam (október 1996) og Belgíu (aprfl
1997). Samningar við þessi lönd verða væntanlega undirritaðir á næstu mán-
uðum. A næstunni em fyrirhugaðar viðræður um tvísköttunarsamninga við
Tékkland og Rússland og Island hefur óskað eftir endurskoðun á tvísköttunar-
samningnum við Bandarrkin frá 1975.
Hlutverk tvísköttunarsamninga er einkum að komast hjá tvísköttun tekna og
eigna milli landa og spoma gegn undanskoti á tekjum og eignum frá skatti.3
Með tvísköttun er átt við það þegar sama skattskylda efnisatriðið er skattlagt
oftar en einu sinni. Venjulega er talað um lagalega tvísköttun þegar sami aðili
er tvískattaður vegna sömu tekna eða eigna.4 I upphafsorðum samningsfyrir-
myndar OECD varðandi skattlagningu á tekjur og eignir segir svo í beinni
þýðingu:
2 Auk almennra tvísköttunarsamninga hafa verið gerðir takmarkaðir tvísköttunarsamningar við
Belgíu, sbr. augl. nr. 79/1931 og 21/1970, og Lúxemborg, sbr. augl. nr. 18/1976, vegna siglinga- og
loftferðafyrirtækja og gagnkvæm yfirlýsing gildir milli íslands og Hollands um undanþágu frá
sköttum af tekjum af skipa- og flugvélarekstri frá 1980 og milli íslands og Kanada vegna tekna af
flugsamgöngum frá apnl 1996. Gert er ráð fyrir því að þessir takmörkuðu samningar og yfir-
lýsingar falli úr gildi við gildistöku almennra tvísköttunarsamninga við þessi lönd.
3 Samkvæmt 3. mgr. 117. gr. 1. nr. 75/1981 er ríkisskattstjóra heimilt skv. umsókn skattaðila eða
ábendingu skattstjóra að lækka tekjuskatt og eignarskatt hans hér á landi með hliðsjón af skatt-
greiðslum hans í ríkjum sem ekki hefur verið gerður tvísköttunarsamningur við. Sjá einnig 2. mgr.
34. gr. 1. nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga varðandi útsvör. Umfjöllun um slíka einhliða
fvilnun fellur utan efnissviðs þessarar greinar.
4 Með efnahagslegri tvísköttun er átt við það tilvik þegar fleiri en einn aðili eru skattlagðir vegna
sama atriðis, t.d. þegar hlutafélag er skattlagt vegna hagnaðar félagsins og hluthafar þess eru síðan
skattlagðir vegna arðs sem þeir fá úthlutað úr þessum sama hagnaði.
288