Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Síða 65

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Síða 65
Alþjóðlega lagalega tvísköttun má almennt skilgreina sem álagningu sambæri- legra skatta í tveimur (eða fleiri) ríkjum á sama gjaldanda vegna sama efnisatriðis og vegna sömu tímabila.5 Alþjóðleg lagaleg tvísköttun verður aðallega vegna þess að flest ríki skatt- leggja ekki aðeins þær eignir og tekjur sem verða til innan landamæra þeirra, heldur einnig tekjur og eignir sem eiga uppruna sinn eða staðsettar eru utan þeirra. Gjaldandi með ótakmarkaða skattskyldu á íslandi og heimilisfastur þar skal greiða tekjuskatt hér á landi af öllum tekjum sínum hvort sem þeirra er aflað innanlands eða utan og eignarskatt af öllum eignum sínum, hvort sem þær eru staðsettar hér á landi eða erlendis, sbr. 1. og 2. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt (tskl.).6 Þá ber gjaldanda sem heimilisfastur er og skattskyldur erlendis að greiða skatt á Islandi vegna nánar tiltekinna tekna sinna hér á landi, sbr. 3. gr. tskl., sbr. ennfremur 19. og 20. gr. 1. nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga um útsvör (útsvl.). Fyrri reglan, sem byggir á megin- reglunni um alheimstekjuskattlagningu,7 er nefnd heimilisfestarreglan en sú síðari upprunalandsreglan. Þessar reglur eru grundvallarreglur varðandi inn- lendar skattlagningarheimildir sem ekki er rúm til að fjalla frekar um í þessari samantekt. Þegar fjallað verður um einstakar greinar Norðurlandasamningsins hér á eftir, verður þó gerð einhver grein fyrir þeim ákvæðum í íslenskum tekjuskattslögum sem heimila skattlagningu þeirra sem hafa takmarkaða skattskyldu hér á landi eftir því sem við á. Það er þó ljóst að þegar gjaldandi heimilisfastur á íslandi öðlast tekjur eða á eignir í landi sem hefur sömu eða svipaðar skattlagningarreglur og ísland, verður um skattlagningu í báðum löndunum að ræða. Þá verður tvísköttun einnig þegar erlendur gjaldandi hefur tekjur frá íslandi eða á þar eignir og er heimilisfastur í landi sem hefur sömu eða svipaðar skattlagningarreglur og gilda á Islandi. Fleiri dæmi um alþjóðlega lagalega tvísköttun má nefna, t.d. þegar gjaldandi er talinn með ótakmarkaða skattskyldu í tveimur löndum samtímis. Tvísköttunarsamningum er ætlað að greiða úr flækjum af þessu tagi. Lög um tvísköttun er grein af þeim meiði sem venjulega er kallaður alþjóð- legur skattaréttur. Venjulega er það hugtak látið taka til allra alþjóðlegra og innlendra skattaákvæða sem sérstaklega taka til aðstæðna er snerta landsvæði fleiri en eins ríkis (cross-border situations).8 Tvísköttunarsamningar eru yfirleitt tvíhliða, þ.e. gerðir milli tveggja ríkja. Tvísköttunarsamningur Norðurlanda hefur hins vegar þá sérstöðu að hann er marghliða eða á milli 6 landa; íslands, Danmerkur, Færeyja, Finnlands, Noregs 5 Model Tax Convention On Income And On Capital, OECD, September 1996, Condensed version, bls. 7. 6 Sjá nánar um skattskyldu, Jónatan Þórmundsson: „Skattskylda einstaklinga", Tímarit lögfræð- inga, 1. hefti 1982, bls. 2-29. 7 Thpger Nielsen: Indkomstbeskatning I 1965, bls. 237 og áfram. 8 Klaus Vogel: On double taxation conventions, Kluwer 1991, Holland, bls. 3. 289
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.