Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Side 79

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Side 79
samkvæmt þeim greinum getur útsvarið verið 11,24 til 12,04% (í staðgreiðslu árið 1997 11,57%). Stjómarlaunin eru staðgreiðsluskyld, sbr. 2., 4. og 5. gr. 1. nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, og er sú staðgreiðsla fullnaðar- greiðsla skv. 9. gr. s.l. Samkvæmt þessu er íslenskum skattyfirvöldum skylt að taka 31,57% skatt af stjómarlaununum þess manns sem búsettur er í Danmörku, enda stendur 16. grein Norðurlandasamningsins því ekki í vegi. Orðanotkunin „má skattleggja“ í 16. grein merkir það einungis að Island og Danmörk hafa í samningum orðið ásátt um það sín á milli að Island megi beita þeim skatt- lagningarrétti sem það hefur samkvæmt íslenskum lögum og að skattlagningar- réttur Islands sætir engum takmörkunum samkvæmt samningnum. Ef dæminu er haldið áfram til Danmerkur þá er danski stjómarmaðurinn heimilisfastur þar og þar með skattskyldur af stjórnarlaununum frá Islandi. Ef við gefum okkur það að tekjuskatturinn af stjómarlaununum í Danmörku sé 50%, kemur Danmörk í veg fyrir tvísköttun með því að leyfa sem frádrátt frá þessum 50% danska tekjuskatti þann 31,57% skatt sem tekinn hefur verið á Islandi, sbr. 1. mgr. 25. greinar Norðurlandasamningsins. Niðurstaðan er því sú að ísland og Danmörk hafa skipt með sér réttinum til að skattleggja stjómar- launin. Það verður því einnig að hafa það í huga við túlkun og framkvæmd samningsins að þegar „skattleggja má“ tekjur eða eignir samkvæmt ákvæðum 6.-24. greinar samningsins þá þýðir það ekki að hitt ríkið sé svipt réttinum til þess að skattleggja viðkomandi tekjur eða eignir. Skattlagningin getur einnig farið fram í hinu ríkinu ef það er á annað borð heimilt samkvæmt lögum þess rikis. Ef gjaldandinn er heimilisfastur í því ríki er það ríki skuldbundið til þess að koma í veg fyrir þá tvísköttun sem af því leiðir, sbr. 25. grein samningsins. Ef upprunalandið afsalar sér rétti til skattlagningar ákveðinna tekna eða eigna þá er það venjulega orðað þannig að viðkomandi tekjur eða eignir „skuli einungis" skattlagðar í heimilisfestarlandinu. Ef þannig er að farið er útilokað að tvísköttunartilvik komi til, sbr. t.d. 1. mgr. 11. greinar samningsins um vexti. 3.3.4.2 6. grein. Tekjur af fasteign í 6. grein er fjallað um skattlagningu tekna af fasteign. 1., 2. og 4. mgr. eru óbreyttar frá gamla samningnum og í samræmi við samsvarandi grein í OECD- fyrirmyndinni. í greininni er ákveðið að tekjur af fasteign megi alltaf skatt- leggja í því ríki sem fasteignin er staðsett. Skilgreining á hugtakinu „fasteign“ sem í gamla samningnum var að finna í 2. mgr. 6. greinar hefur nú verið flutt í f lið 1. mgr. 3. greinar. Samkvæmt henni skal hugtakið „fasteign“ hafa sömu merkingu og hugtakið hefur samkvæmt lögum þess samningsríkis þar sem fasteignin er. Það felur þó samkvæmt 3. greininni í öllum tilvikum í sér fylgifé með fasteign, áhöfn og tæki sem notuð eru í landbúnaði og við skógamýtingu, byggingar, réttindi varðandi fasteignir samkvæmt reglum einkamálaréttar, afnotarétt af fasteign og rétt til breytilegs eða fasts endurgjalds fyrir hagnýtingu á eða rétt til hagnýtingar á námum, lindum eða öðrum náttúruauðlindum. 303
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.