Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Page 82

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1997, Page 82
í 2. mgr eru ákvæði um hugsanlega leiðréttingu skattskylds hagnaðar fyrirtækis í öðru samningsríki þegar slík leiðrétting sem lýst er í 1. mgr. hefur verið gerð í hinu samningsríkinu. Akvæðið í 2. mgr. er frábrugðið OECD- fyrirmyndinni að því leyti að það kemur skýrt fram að ríki þarf ekki sjálfkrafa að framkvæma leiðréttingu á skattlagningu í samræmi við það sem hitt ríkið hefur gert, heldur byggist samræmingarleiðréttingin á sérstöku mati í hverju tilfelli. 3.3.4.6 10. grein. Ágóðahlutir í 10. grein er fjallað um ágóðahluti. Ágóðahlutir eru í 6. mgr. greinarinnar skilgreindir sem tekjur af hlutabréfum, hlutdeildarskírteinum eða öðrum réttindum, sem ekki eru skuldakröfur, er veita rétt til hlutdeildar í ágóða, svo og aðrar tekjur frá félögum sem við skattlagningu er farið með á sama hátt og tekjur af hlutabréfum samkvæmt löggjöf þess ríkis þar sem félagið sem ágóða- hlutina greiddi er heimilisfast. I 1. mgr. 10. greinar er ákveðið að slíkar tekjur megi skattleggja í því ríki sem hluthafinn er heimilisfastur. Ágóðahlutina má einnig skattleggja í því ríki sem félagið sem greiðir þá er heimilisfast með þeim skatthlutföllum sem tilgreind eru í 3. og 4. mgr. í lokamálslið 3. mgr. er ákveðið að ágóðahlutir sem greiddir eru til félags sem á beint að minnsta kosti 10% eignarhlutdeild í félaginu sem ágóðahlutina greiðir skuli vera undanþegnir skattlagningu í greiðslurfkinu (upprunaríkinu). Hér er um að ræða svokallaða „beina fjárfestingu“ (direct investment)26 og breytingu frá gamla samningnum þar sem gerð var krafa um 25% eignar- hlutdeild við þessar aðstæður. í öllum öðrum tilfellum er afdráttarskatturinn í 10. gr. samningsins 15% eins og áður. Ástæða þess að úthlutun ágóðahluta frá dótturfélagi til móðurfélags er, eins og hér er gert, undanþegin skattlagningu er viljinn til þess að koma í veg fyrir eða takmarka svokallaða keðjuskattlagningu sömu tekna. Ástæða þess að þessi undanþága var víkkuð var sú að 25% eignar- haldskrafan þótti setja of þröngar skorður við samvinnu fyrirtækja um fjár- festingar í öðru landi. í löggjöf allra Norðurlandanna nema Islands er að finna heimildir til þess að hindra það að sami hagnaður móðurfélags og erlends dótturfélags sé skattlagður oftar en einu sinni. Má þar nefna í Danmörku 3. mgr. 13. greinar laga nr. 769/1995 um tekjuskattlagningu hlutafélaga og í Noregi 1.-7. gr. laga nr. 65/1991 um félagaskattlagningu. í þessu sambandi má einnig nefna tilskipun 26 Sbr. International Tax Glossary, revised 3rd edition, IBFD 1996, bls. 92. Direct investment. „Description often given to a substantial investment in the shares of a company. In contrast to portfolio investment, direct investment often refers to any shareholding amounting to 10% or more of the total shares of the relevant company, thus giving rise to partial or total control of the company depending on the extent of the investment". 27 Sjá nánar Garðar Valdimarsson, „íslenskar reglur um skattlagningu arðs með hliðsjón af gerð tvísköttunarsamninga", Álit, tímarit löggiltra endurskoðenda, 1. tbl. 1996, bls 1-8. 306
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.